Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hópferð til Kína til að kynna Ísland

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 8.3.2026 | 21:50 Hópferð til Kína til að kynna Ísland Sjanghaí. Horft úr Perluturninum yfir heimsborgina. mbl.is/Baldur Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Þorleifur Þór Jónsson, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu, segir að með fyrirhugaðri ferð Visit Iceland til Kína sé ætlunin að kynna Ísland sem áfangastað en mikill áhugi sé á Íslandsferðum ytra. Kynningin mun fara fram í Peking, Sjanghaí, Guangzhou og Shenzhen dagana 23.-27. mars nk. Fulltrúar 14 íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja munu þar kynna Íslandsferðir en þau eru talin upp hér til hliðar. Þorleifur Þór, sem verður að þessu sinni eini fulltrúi Íslandsstofu í ferðinni, segir þetta fyrstu kynninguna af þessu tagi í Kína síðan árið 2019. Sú síðasta árið 2019 „Íslandsstofa byrjaði að vera með ferðakynningar í Kína árið 2011 og sú síðasta fór fram í Wuhan í nóvember 2019, eða rétt áður en farsóttin hófst. Þannig að það var orðið mál til komið að setja vinnustofurnar aftur af stað. Þetta eru fjögurra til fimm tíma viðburðir þar sem við bjóðum ferðaskrifstofum á hverju svæði að koma og fá Íslandskynningu og eiga svo hraðstefnumót við íslensku fyrirtækin. Þarna verða 14 fyrirtæki úr öllum greinum ferðaþjónustunnar en það er gaman frá því að segja að ríflega helmingur þeirra er með kínverskumælandi starfsmenn sem þau geta sent á vettvang. Þannig að menn eru greinilega að undirbúa sig fyrir aukna komu kínverskra ferðamanna og sjá mikil tækifæri á þessum stóra markaði.“ Ísland ofarlega í huga Spurður um möguleikana í Kína segir Þorleifur Þór að nýleg kynning ferðaþjónustufyrirtækisins Dragon Trail á meðal ferðaskrifstofa bendi til að Kínverjar hafi mikinn áhuga á Íslandi sem áfangastað. Til dæmis mælist áhuginn meiri á Íslandsferðum en ferðum til Noregs og Nýja-Sjálands. „Það er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að við höfum nánast ekki verið með neina markaðsstarfsemi í Kína. Þannig að þetta er sjálfsprottinn áhugi vegna mynda og umfjöllunar á kínverskum samfélagsmiðlum,“ segir Þorleifur Þór. Það styðji sóknina á kínverska markaðinn að áritanadeildin í sendiráði Íslands í Peking hafi verið efld en hún hafi afgreitt um 24 þúsund umsóknir um áritanir til Íslands í fyrra. Þá bendir hann á að kínverskir ferðamenn hafi góð fjárráð og að í Kína sé mikil hefð fyrir því að kaupa gjafir handa vinum og ástvinum á ferðalögum. Beint flug í undirbúningi Beint flug milli ríkjanna hefur verið í undirbúningi, eins og He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, rifjaði upp á danshátíð kínverska sendiráðsins sem haldin var í Háskólabíói á dögunum, í tilefni af kínverska nýárinu. „Beint flug gæti orðið lyftistöng fyrir útflutning á ferskum sjávarafurðum beint inn á þessa risamarkaði. Þannig væri hægt að fljúga með fisk, til dæmis glænýjan lax frá Íslandi, og vera kominn með hann á diskinn í Sjanghaí degi síðar,“ segir Þorleifur Þór. Íslandsstofa fylgir hér eftir kynningu sinni í Asíu í fyrra en hún kom að kynningu í norræna skálanum á heimssýningunni í Osaka í Japan sem Halla Tómasdóttir heimsótti í maí og svo Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í september. Þá voru íslensk fyrirtæki kynnt á ráðstefnu um sjálfbærni í Sjanghaí í október sem Halla Tómasdóttir var heiðursgestur á. Meðal þeirra voru Icelandair og Bio Effect en rætt var við Pearl Shang, forstjóra Bio Effect í Kína, í Morgunblaðinu 11. desember sl. Loks undirbýr kínversk-íslenska viðskiptaráðið ferð til Kína. Úr ýmsum áttum Fjórtán fyrirtæki senda fulltrúa Ferðaþjónustufyrirtækin fjórtán sem munu senda fulltrúa á Íslandskynninguna hjá Visit Iceland í Kína eru Bláa lónið, Bus4u, Bustravel Iceland, Icelandia, Iceland Travel, IDCIBIDCI, North Fantasy, Icelandair, Iceland Arctic Travel, Iceland Experience, Nonni Travel, Prime Tours, Reykjavík Sailors og Snæland Travel. Eins og Þorleifur Þór nefnir hefur ríflega helmingur þessara fyrirtækja innan sinna raða starfsfólk sem talar kínversku. Þessi fyrirtæki bjóða margvíslega þjónustu. Til dæmis býður fyrirtækið Reykjavik Sailors upp á hvalaskoðunarferðir en það skipuleggur meðal annars sérsniðnar ferðir. Sjanghaí. Horft af svölum hótelsins sem Halla forseti dvaldi á í október sl. mbl.is/Baldur Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aftur líf í ítölsku titilbaráttunni Hópferð til Kína til að kynna Ísland Segja sögur jafningja sem hafa látið lífið í stríðinu Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Allt í blóma hjá Boston Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jarðskjálftar í Mýrdalsjökli Blair ósáttur: Vinir standa með manni í krísu Ræddu saman í síma eftir orðaskak Uppgjöf í viðureigninni við verðbólgu og vexti Mest lesið Í gær Í vikunni Svikahrappar náðu milljarði Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Özur Lárusson Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Svikahrappar náðu milljarði Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Nýjast á mbl.is » Aftur líf í ítölsku titilbaráttunni Hópferð til Kína til að kynna Ísland Segja sögur jafningja sem hafa látið lífið í stríðinu Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Allt í blóma hjá Boston Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ræddu saman í síma eftir orðaskak „Þetta atvik er ótækt“ Jarðskjálftar í Mýrdalsjökli Flúði Gasa og býr til blóm Mest lesið Í gær Í vikunni Svikahrappar náðu milljarði Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Özur Lárusson Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Svikahrappar náðu milljarði Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni

Share this article