Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Beint flug milli Íslands og Kína hefst í sumar

Read Full Article →

Kínverska flugfélagið Air China áformar að hefja beint flug til Íslands þrisvar sinnum í viku snemma í sumar. Um er að ræða fyrstu hefðbundnu áætlunarflugferðir milli landanna með viðkomu í Kaupmannahöfn. Tilkynningin kemur í kjölfar fyrstu skipulögðu hópferðar Úrvals Útsýnar til Kína sem lýkur í dag þegar farþegar ásamt framkvæmdastjóra Úrvals Útsýnar, Þórunni Reynisdóttur, fljúga heim til Íslands eftir vel heppnaða ferð. Á síðasta degi ferðarinnar hittu framkvæmdastjóri og fararstjóri, Kristín A. Árnadóttir, fulltrúa Air China í höfuðstöðvum félagsins í Peking þar sem til umræðu voru áform beggja um aukna samvinnu. Kristín A. Árnadóttir, fyrrum sendiherra Íslands í Kína, Þórunn Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Úrvals Útsýnar, ásamt Liu Peng, framkvæmdastjóri samskipta- og skipulagsdeildar, og starfsfólk markaðssviðs Air China. © Aðsend mynd (AÐSEND) Úrval Útsýn hyggst þá bjóða upp á skipulegar sérferðir og sérhannaðar ferðir fyrir félagasamtök og fyrirtæki til Kína á næstunni. Sjá einnig Vill sjá beint flug milli Kína og Íslands sem fyrst Hópurinn heimsótti jafnframt sendiráð Íslands í Peking og fræddist um starfsemina og jarðhitaver í Xi’an, sem starfrækt er í samvinnu íslenskra og kínverskra orkufyrirtækja, og tryggir húshitun með jarðvarmanýtingu fyrir hundruð þúsunda heimila á svæðinu.

Share this article