Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Góðar áætlanir skila árangri

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 28.3.2026 | 8:00 Góðar áætlanir skila árangri He Rulong mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu: Vaxandi fjöldi íslenskra fyrirtækja leitar til sendráðs Kína á Íslandi eftir upplýsingum um viðskipti við Kína. Við ráðleggjum þeim alltaf að kynna sér kínverska áætlanagerð og nýta sér þá möguleika sem felast í skammtíma- og langtímaáætlunum Kína um þróun. Þannig fá þau upplýsingar um tækifæri á þessum stóra markaði og hvað hægt er að láta framleiða þar fyrir sig. Ég vann hjá Alþýðuþingi Kína í fimmtán ár og kynntist þá af eigin raun hvernig þingið starfar við undirbúning að skammtímaáætlun ríkisins til eins árs og til lengri tíma litið. Fjórði allsherjarfundur þingsins, sem haldinn var dagana 5.-12. mars, er sérstaklega mikilvægur í þessu sambandi. Þar var samþykkt skýrsla um störf ríkisins og markmið þessa árs og kynnt tillaga að 15. áætlun ríkisins um þróun þjóðfélagsins og efnahagsmála til næstu fimm ára. Í skýrslu ríkisins voru sett markmiðið fyrir starf ríkisins fyrir árið 2026 og fimm ára áætlunin setur langtímamarkmið fyrir tímabilið 2026 til 2030. Kína hefur gert áætlanir um þjóðfélags- og efnahagsþróun síðan 1953. Ég hef tekið eftir því að Ísland hefur einnig gert fjárlagaáætlanir til fimm ára undanfarin tólf ár. Þetta staðfestir mikilvægi áætlanagerðar. Í kínversku málstæki segir: „Verkefni ársins skal ákveða að vori.“ Kínverjar gera alltaf áætlanir snemma og til langs tíma. Í fimmtándu fimm ára áætluninni Kína eru tilgreind fjögur helstu stefnumarkandi verkefni til næstu fimm ára: Stuðla að tækninýjungum, auka innlenda eftirspurn, draga úr launamismunun og auka öryggi matvælaframboðs og orkuframleiðslu. Með tilliti til þessara stefnumarkandi verkefna var ákveðið að stefna að 4,5-5% hagvexti árið 2026. Þetta er metnaðarfullt markmið miðað við stærð efnahags okkar og alþjóðlegt efnahagsástand um þessar mundir. Lögð er áhersla á hátækniþróun framtíðariðngreina á sviði skammtatækni, tölvugreindar, tölvutengingar mannsheilans og 6. kynslóðar netsamskipta (6G). Þá verður haldið áfram af fullum krafti við þróun græns og kolefnissnauðs hagkerfis, stuðlað að stöðugleika á fasteignamarkaði og dregið úr hættum vegna skuldastöðu sveitarfélaga. Eigandi lítils íslensks fyrirtækis lýsti nýlega fyrir mér aðdáun á orðheldni kínversks samstarfsaðila hennar sem stæði hratt og örugglega við öll gefin loforð. Reyndar er það einkenni á kínversku viðskiptalífi að það er byggt á gagnkvæmu trausti og á grundvelli fyrri viðskipta aðila í milli. Í gömlu riti segir: „Án trausts er ekkert til að standa á.“ Þetta á líka við um samskipti ríkisins við almenning. Fyrirtæki og almenningur treysta því að ríkið standi við áætlanir sínar og ríkið treystir því að fyrirtæki og stofnanir fylgi áætlunum eftir í verki. Við getum treyst áætlun ríkisins um þróun hátækniiðnaðar og aukna innanlandsneyslu. Á liðnu ári var hlutur hátækni í innanlandsneyslu burðarás kínverskrar efnahagsþróunar. Framleiðsluaukning á hátæknivörum nam 9,4%, og neysluþátturinn nam 52% í hagvexti landsins. Rafmagnsnotkun Kína er nú tvöfalt meiri en rafmagnsnotkun Bandaríkjanna og meiri en samanlögð heildarrafmagnsnotkun Evrópusambandsins, Rússlands, Indlands og Japans. Rafmagn er lykilskilyrði fyrir þróun hátækniiðnaðar. Þá er rétt að minnast þess að þriðjungur raforkuframleiðslu Kína byggist á grænni orku. Vissulega höfum við áhyggjur af ástandinu í Mið-Austurlöndum sem skapar margvísleg vandamál víðs vegar um heiminn: orkuskort, rofnar aðfangakeðjur, framleiðsluröskun og verðbólgu. Við slíkar aðstæður er staðfesta og stöðugleiki ómetanleg auðlind. Kína er staðráðið í að standa fast við áætlanir sínar um efnahagsþróun bæði til skamms tíma litið og til lengri tíma. Stöndum saman um stöðugleika og stuðlum að friði og almennri velsæld í öllum löndum. Megi það verða framlag okkar til nýs kafla í 55 ára sögu stjórnmálasamskipta Kína og Íslands. He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segir óvíst hvort Bandaríkin myndu aðstoða NATO Við höfðum alltaf trú á þessu Spurning án stoðar í veruleikanum Góðar áætlanir skila árangri Allir treysta á manninn í skíðakennarajakkanum Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skurðirnir standa fyrir sínu Segir óvíst hvort Bandaríkin myndu aðstoða NATO Óánægja með bankaskatt Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Samgöngutruflanir eru líklegar Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Eru ennþá taplausir í Gettu betur Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Eldfjalla-Þorvaldur í kosningabaráttuna Vill sex akreina Miklubrautargöng Tommi fagnar tímamótum Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Nýjast á mbl.is » Segir óvíst hvort Bandaríkin myndu aðstoða NATO Við höfðum alltaf trú á þessu Spurning án stoðar í veruleikanum Góðar áætlanir skila árangri Allir treysta á manninn í skíðakennarajakkanum Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðeins hægt að leggja ef bókað er fyrir fram Segir óvíst hvort Bandaríkin myndu aðstoða NATO Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Samgöngutruflanir eru líklegar Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Eru ennþá taplausir í Gettu betur Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Eldfjalla-Þorvaldur í kosningabaráttuna Vill sex akreina Miklubrautargöng Tommi fagnar tímamótum Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf

Share this article