Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Reyna ekki að hrifsa til sín olíu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 3.4.2026 | 7:15 Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Ávarp He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, ávarpar gesti í kínverska sendiráðinu. Ræddi meðal annars samskipti Kína og Íslands. Morgunblaðið/Eyþór Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, segir stefnt að því að hefja beint flug milli Kína og Íslands fyrir áramót, ef aðstæður í alþjóðamálum leyfa. Var það í fyrsta sinn sem slíkur fyrirvari er gerður við beina flugið en víða í Asíu er farið að skammta eldsneyti vegna röskunar á olíuflutningum frá Persaflóa. Þá sagðist sendiherrann leggja áherslu á að ganga frá beina fluginu áður en sendiherratíð hans lýkur á Íslandi en hann er sennilega sá kínverski sendiherra sem mest hefur borið á hér á landi, að minnsta kosti í seinni tíð. Þetta kom fram á fundi í kínverska sendiráðinu í fyrradag en þar fór sendiherrann yfir helstu tíðindi af landsmálum í Kína í kjölfar þess að yfirstjórn kommúnistaflokksins fundaði og samþykkti nýja fimm ára áætlun, þá 15. síðan alþýðulýðveldið var stofnað árið 1949 í tíð Maós formanns. Ólafur meðal heiðursgesta Góð mæting var í sendiráðinu en meðal þeirra gesta sem skipað var til öndvegis voru Ólafur Harðarson, prófessor emeritus við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Jónína Bjartmarz, fyrrverandi ráðherra og formaður Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins (ÍKV), Sveinn K. Einarsson, varaskrifstofustjóri á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Þorleifur Þór Jónsson, viðskiptastjóri hjá Íslandsstofu, en sá síðastnefndi er nýkominn úr kynnisferð íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja til Kína. Hagvöxtur í mótvindi He sendiherra sagði kommúnistaflokkinn hafa ályktað að nú þegar úfar rísa í alþjóðamálum muni Kína halda áfram að stuðla að efnahagsþróun, stöðugleika og friði í heimsmálum. Kínverska hagkerfið hafi sýnt mikla seiglu og haldið áfram að vaxa þrátt fyrir mótvind. Verg landsframleiðsla í Kína hafi aukist um 5% í fyrra og iðnþróun haldið áfram. Markmiðið sé að hagvöxtur verði 4,5-5% í ár og að Kína verði áfram mikilvægur aflvaki hagvaxtar á heimsvísu, en síðustu áratugi hafi Kína staðið undir ríflega þriðjungi hagvaxtar í heiminum. Þá hafi góður árangur náðst í þróun þjarka og vélmenna en sú áhersla er hluti af þeirri stefnu kínverska kommúnistaflokksins að Kína verði leiðandi í tækniþróun og útflutningsfyrirtæki landsins í efstu þrepum virðiskeðjunnar. En öldrun kínversku þjóðarinnar mun líka kalla á aukna notkun sjálfvirkni til að halda uppi verðmætasköpun. Tók sendiherrann dæmi af notkun Landsbjargar á DJI-drónum frá Kína sem dæmi um ávinning kínverskrar tækniþróunar fyrir Íslendinga. Græna orkan í sókn Sendiherrann vék svo að stefnu kommúnistaflokksins í orkumálum og hvernig hann leggi áherslu á uppbyggingu endurnýjanlegra orkuinnviða sem jafnframt falla að markmiðum um kolefnishlutleysi. Árið 2025 hafi orka úr öðrum uppsprettum en jarðefnaeldsneyti verið vel rúmur helmingur af uppsettri nýrri raforku í Kína. Þá vék sendiherrann að þeirri röskun sem hafi orðið á olíuframboðinu, eftir að átök brutust út í Íran, og hvernig fulltrúi kínverskra stjórnvalda hafi reynt að bera vopn á klæðin. „Það er skortur á jarðefnaeldsneyti og Kína er að búa sig undir framtíðina með orkuskiptum. Við eflum raforkugeirann, við notum græna tækni og við þróum grænan iðnað. Þannig búum við okkur undir framtíðina. En við vitum að ekki eru öll lönd á sömu blaðsíðu og Kína. Sum lönd munu vilja hrifsa til sín olíu frá öðrum löndum,“ sagði sendiherrann án þess að nefna hvaða lönd ættu þar hlut að máli. Aukið samstarf við Ísland Árið í fyrra var tíðindamikið í samskiptum Íslands og Kína en ríkin tóku upp stjórnmálasamband fyrir að verða 55 árum. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, var heiðursgestur á alþjóðlegri ráðstefnu um jafnrétti kynjanna í Peking síðastliðið haust og sat við hlið Xi Jinping, forseta Kína, í upphafi ráðstefnunnar, sem er mikill virðingarvottur. Þau Xi ræddu svo saman í Höll alþýðunnar daginn eftir, ásamt fylgdarliði frá báðum ríkjum. „Halla Tómasdóttir forseti átti farsælan fund með Xi Jinping forseta, þar sem báðir aðilar náðu saman um samvinnu á sviði grænnar orku, útflutning á íslenskum sjávarafurðum til Kína og gjaldmiðlaskiptasamninga, sem opnaði nýjan kafla í tvíhliða samskiptum okkar,“ sagði sendiherrann. Halla forseti hefði í heimsókninni meðal annars undirritað sameiginlega yfirlýsingu um þróun grænnar orku en Ísland hefði mikið fram að færa á því sviði og við þróun hreinnar orku. „Ég er sannfærður um að í framtíðinni geta Kína og Ísland dýpkað samstarf sitt enn frekar á sviði umhverfisvænnar tækni,“ sagði sendiherrann. Hann ræddi svo fríverslun og hvernig Ísland væri fyrsta landið í Evrópu til að undirrita fríverslunarsamning við Kína (vorið 2013), en sá samningur hafi haft mikla þýðingu. Viðskipti ríkjanna hafi aukist og þau bundist nánari böndum. Reisa ekki tollamúra Þessu tengt áréttaði sendiherrann að kínversk stjórnvöld hefðu önnur viðhorf til tolla en sum ríki heims um þessar mundir án þess að geta um þau ríki. Til marks um það felli þau niður tolla hjá þeim þróunarríkjum sem hafa stjórnmálasamband við Kína. „Það er nokkuð sem við erum stolt af því að öll lönd eiga nú í erfiðleikum með óvæntar tollahækkanir og tollahótanir frá sumum löndum,“ sagði sendiherrann. Fá margar fyrirspurnir He gerði að umtalsefni grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið síðustu helgi og rakti svo hvernig sendiráðið fái sífellt fleiri fyrirspurnir frá fulltrúum íslenskra fyrirtækja um viðskipti í Kína. Starfsmenn kínverska sendiráðsins í Reykjavík liðsinni þeim við að stofna til viðskiptasambanda í Kína. Loks fjallaði hann um fjölgun kínverskra ferðamanna á Íslandi en samtímis fari bandarískum ferðamönnum fækkandi hér á landi. Eftir ræðu sendiherrans steig Kristján Gíslason í pontu og sagði frá mótorhjólaferð sinni um Kína en hann hjólaði meðal annars hinn svokallaða silkiveg. Síðan var opnað fyrir fyrirspurnir í sal og við það tilefni áréttaði Jónína Bjartmarz áform um ferð Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins til Kína þegar beina flugið hefst. Í Bríetartúni Venju samkvæmt var heiðursgestum skipað til öndvegis í hátíðarsal kínverska sendiráðsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aftur í eigu fjölskyldunnar Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Grímuklæddir menn með kylfur biðu fyrir utan heimilið „Sífellt fleiri Íslendingar kjósa að fara út að borða á páskunum“ Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fleiri Evrópuríki lækka gjöld á eldsneyti Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Geimfararnir æfðu sig á íslenskri grundu Eldsneytisbirgðir í 45 daga Mest lesið Í gær Í vikunni Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Efnahagsmálin meira áhyggjuefni en fylgistap Óveðrið gengur niður og blíðviðri tekur við Stefnan ekki í samræmi við kröfur Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Fjarðarheiði og Fagridalur opna ekki í kvöld Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Hvassahraun auglýst til sölu Niðurfelling kílómetragjalds fær Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“ Nýjast á mbl.is » Aftur í eigu fjölskyldunnar Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Grímuklæddir menn með kylfur biðu fyrir utan heimilið „Sífellt fleiri Íslendingar kjósa að fara út að borða á páskunum“ Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Biðlistinn bara lengist og lengist Minnst 7-8 þúsund manns eru á biðlista Hvassahraun auglýst til sölu Mest lesið Í gær Í vikunni Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Efnahagsmálin meira áhyggjuefni en fylgistap Óveðrið gengur niður og blíðviðri tekur við Stefnan ekki í samræmi við kröfur Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Fjarðarheiði og Fagridalur opna ekki í kvöld Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun

Share this article