He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, segir að Íslendingar þurfi ekki að velja á milli Kína og Bandaríkjanna þegar kemur að alþjóðlegum viðskiptum og samskiptum. Hann segir að Ísland geti viðhaldið góðum samskiptum við bæði ríkin án árekstra. Þetta sagði sendiherrann í samtali við Viðskiptablaðið að loknum kynningarfundi sem kínverska sendiráðið hélt í gær. Fundurinn var jafnframt haldinn í tilefni af 55 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Kína. Þar fjallaði hann meðal annars um nýliðinn leiðtogafund Xi Jinping og Donalds Trump sem og undirbúning að beinu flugi milli Íslands og Kína. Að sögn sendiherrans hafa samskipti Kína og Bandaríkjanna áhrif á öll ríki heims, þar á meðal Ísland. Flest ríki vilji sjá stórveldin eiga í samstarfi fremur en að samskipti þeirra einkennist af einhliða aðgerðum og átökum. Sjá einnig Undirrituðu tímamótaorkusamning í Shanghai „Kína hefur aldrei leitast við að neyða önnur ríki til að taka einhliða afstöðu með sér. Þar að auki bera Kína og Bandaríkin, sem fastaríki í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, sérstaka ábyrgð á að stuðla að stöðugleika í heiminum. Fyrir lönd eins og Ísland snýst þetta ekki um að velja á milli. Ísland getur átt góð samskipti við bæði Bandaríkin og Kína á sama tíma.“ „Þetta er mjög spennandi tími og jákvæð þróun fyrir samskipti Íslands og Kína.“ Sendiherrann bætir við að samskipti Íslands og Kína hafi þróast með jákvæðum hætti undanfarin ár og að samstarfið hafi skilað ávinningi fyrir atvinnulíf og almenning. Í ræðu sinni vísaði sendiherrann jafnframt til greinar sem birtist í Viðskiptablaðinu fyrr í þessum mánuði um CIAO-rannsóknarstöðina á Kárhóli. Hann sagði rannsóknarstöðina sýna að Ísland gæti átt farsælt vísindasamstarf við Kína og hafnaði jafnframt þeim áhyggjum sem hafa komið fram undanfarin ár um að starfsemin hefði hernaðarlegan tilgang. Seinkun á flugi en styttist í flugtak Fulltrúar frá Air China eru einnig staddir á Íslandi vegna undirbúnings að beinu flugi milli landanna og að sögn sendiherrans eru þeir mjög jákvæðir um framhaldið. Til stóð að hefja beint flug í þessum mánuði en tafir hafa orðið á þeim áformum sökum stríðsins í Íran. Sjá einnig Beint flug milli Íslands og Kína hefst í sumar Um yrði að ræða fyrstu reglubundnu áætlunarflugferðir milli landanna. Samkvæmt áætlun átti Air China að hefja beint flug til Íslands í sumar þrisvar í viku með viðkomu í Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir raskanir á framboði þotueldsneytis binda stjórnendur Air China miklar vonir við að hefja beint flug til Íslands í síðasta lagi í október. „Þetta eru líka stórar flugvélar sem við erum að tala um en þær geta borið fleiri en 300 farþega og 10 til 15 tonn af farmi, hvort sem það er varningur frá Kína eða lax frá Íslandi. Þetta er mjög spennandi tími og jákvæð þróun fyrir samskipti Íslands og Kína.“