Innlent | Morgunblaðið | 18.6.2026 | 20:40 Kynnir íslenskar vörur í Kína Pearl Shang, forstjóri Bio Effect í Kína, skartaði íslenskri lopapeysu í Veröld – húsi Vigdísar. mbl.is/Baldur Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Pearl Shang, forstjóri Bio Effect í Kína, segir húðvörur íslenska fyrirtækisins verða kynntar með áberandi hætti í Kína í sumar. „Við erum að koma með áhrifavald, sem er í fremstu röð á TikTok og hefur 2,7 milljónir fylgjenda og skilar mikilli sölu, til Íslands í lok júlí vegna viðburðar með íslenskum vörumerkjum í beinni útsendingu. Þetta er þriðji viðburðurinn okkar hér eftir heimsfaraldurinn. Fyrsta rafræna viðskiptahátíð Kína og Íslands í beinni útsendingu fyrir þremur árum skilaði mikilli sölu,“ segir Pearl sem ræddi við blaðamann á viðburði Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins, ÍKV, fyrr í þessum mánuði. En umræddur áhrifavaldur heitir Shuai Ma, eða Mason Ma á ensku. „Við vonumst til að geta skipulagt samtal til að kynna íslenskum lesendum hið blómlega viðskiptamódel rafrænna viðskipta í beinni útsendingu í Kína og deila nýjustu upplýsingum um þróun rafrænna viðskipta, neysluvörur og hugsanleg tækifæri fyrir íslenskar vörur í Kína,“ segir Pearl og vekur athygli á því að þetta form rafrænna viðskipta sé vel þekkt í Kína en sé enn nýtt fyrir evrópska eða íslenska neytendur. Um sé að ræða sölu á íslenskum vörum í beinni útsendingu. Samhliða beinu flugi Íslandskynningin kemur samhliða undirbúningi beins flugs milli Íslands og Kína en ÍKV hefur undirbúið dagskrá í Kína í tengslum við flugið. Er þess að vænta að fjölmenn sendinefnd haldi frá Íslandi til Kína í þeirri ferð. Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands kynnti sér starfsemi Bio Effect í Kína í haust er hún heimsótti kynningarbás fyrirtækisins á ráðstefnu um sjálfbærni í Sjanghaí en Halla var þá heiðursgestur, eins og sagt var frá í Morgunblaðinu 22. október. Halla var þá í síðari hluta heimsóknar sinnar til Kína en í þeim fyrri hitti hún Xi Jinping forseta Kína í Peking og átti við hann mikil samskipti. Þetta er rifjað upp vegna þess að áhugi Höllu á samstarfi íslenskra og kínverskra fyrirtækja getur opnað dyr og skapað ný tækifæri. Hófst á árunum 2012–2013 Undir Pearl heyrir dreifing á hinum íslensku húðvörum Bio Effect á meginlandi Kína, í Hong Kong, Taívan og Makaó. Að sögn Pearl hófst dreifing á vörum Bio Effect í Kína á árunum 2012-2013. Fyrsta skrefið var í Hong Kong en svo fór fyrirtækið í nokkrar hágæðaverslanir eins og Harvey Nichols, Lane Crawford og í fríhafnarverslanir og seldi hjá Cathay Pacific Airways, Air Macau og fleiri flugfélögum. Breyttist í farsóttinni Hún segir söluna í Kína hafa gengið vel á árunum 2013 til 2020 en að mikið hafi breyst þegar farsóttin hófst í mars 2020. Einkaneysla í Kína hafi síðan dregist saman og heldur dregið úr væntingum neytenda. Við það bætist að stóru netverslanirnar í Kína, eins og Alibaba og JD, hafi skapað sér einokunarstöðu á netinu. Fyrir vikið sé hin stafræna umferð afskaplega dýr. Af þessum sökum skapar það tækifæri fyrir Bio Effect að umræddur áhrifavaldur sé að koma til landsins. Að sögn Pearl er hann þekktur áhrifavaldur í snyrtivörum og með um 2,7 milljónir fylgjenda á félagsmiðlinum Douyin og meðstofnandi Dandelion. Helsti markhópur hans er neytendur sem setja gæði í forgang og kjósa sér lúxusvörur í snyrtivörum. Kínverski snyrtivörumarkaðurinn er geysilega verðmætur. Raunar mætti nefna fleiri markaði í Asíu í því efni. Þannig byrja konur í Suður-Kóreu og Japan líka að nota vörur gegn öldrun mjög ungar en vænta má sama mynsturs í fleiri Asíuríkjum þegar millistéttir stækka. Heimsækja fleiri fyrirtæki Reiknað er með því að kínverski áhrifavaldurinn heimsæki jafnframt verksmiðju Algalífs á Ásbrú en fyrirtækið hefur selt talsvert af fæðubótarefninu astaxanthín til Kína. Þá verður tekið hús á ÍSOR til að kynnast hreinleika íslenska vatnsins, komið við hjá Bio Effect og í íslenskri sundlaug, svo eitthvað sé nefnt. Dagskráin er því til þess fallin að vekja áhuga Kínverja á ferðum til Íslands en kyrrðin og hreinleikinn á Íslandi höfðar til margra Kínverja í stórborgunum á austurströnd Kína. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður nánar greint frá beina fluginu til Kína á næstunni en rætt hefur verið um það í nokkurn tíma. Halla forseti og Stone Fang, starfsmaður Bio Effect í Kína. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sviss - Bosnía, staðan er 3:1 Af hverju er fólk að selja miðana sína? Hafna 100 milljóna tilboði Liverpool Kynnir íslenskar vörur í Kína Leggja eina leið af og fækka ferðum Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aflýstu 17. júní vegna veðurs Ný lög um íslenska fánann auka söluna „Stórt verkefni að snúa við svona olíuskipi“ Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið 25 vildu verða sveitarstjóri Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Sviss - Bosnía, staðan er 3:1 Af hverju er fólk að selja miðana sína? Hafna 100 milljóna tilboði Liverpool Kynnir íslenskar vörur í Kína Leggja eina leið af og fækka ferðum Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Minni skortur en í ESB Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið 25 vildu verða sveitarstjóri Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó