Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,37% á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Tólf félög lækkuðu í viðskiptum dagsins og sex hækkuðu. Gengi augnlyfjafélagsins Oculis hækkaði mest í viðskiptum dagsins, um 8,8% og stendur í 1.490 krónum á hlut. Gengi félagsins tók kipp við opnun markaða í morgun eftir tilkynningu þess um jákvæð viðbrögð frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna, FDA, vegna fyrirhugaðrar þróunar á lyfjaefninu Privosegtor. Sjá einnig Oculis hækkar um 6,5% eftir tilkynningu Gengi JBT Marel lækkaði um 5,8% í viðskiptum dagsins en félagið birti uppgjör fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða í gær. Í uppgjörinu kom fram að leiðréttur hagnaður á hlut á tímabilinu var 1,95 dalir sem var undir væntingum greinenda um 2,02 dali á hlut. Gengi Amaroq lækkaði um 2,8% og gengi Skaga um 1,6%. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 434 milljónir króna, og Arion banka, 136 milljónir króna. Velta með hlutabréf annarra félaga var innan við 50 milljónir króna. Heildarvelta dagsins var 898 milljónir króna.