Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,06% í 636 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Þrettán félög lækkuðu í viðskiptum dagsins og fimm hækkuðu. Gengi augnlyfjafélagsins Oculis lækkaði mest í viðskiptum dagsins, um 3,4% og stendur í 1.350 krónum á hlut. Gengi félagsins nálgast nú sitt allra lægsta gildi sem það náði í byrjun síðasta mánaðar eftir að niðurstöður rannsókna á helsta augnlyfi þess skiluðu ekki þeim niðurstöðum sem vænst hafði verið. Mesta hækkun var á gengi JBT Marel sem hækkaði um 2% og Brims sem hækkaði um 1,1%. Mesta veltan var með bréf Festi, 204 milljónir króna, Íslandsbanka, 145 milljónir króna, og Arion banka, 122 milljónir króna.