Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,68% í 992 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Ellefu félög hækkuðu í viðskiptum dagsins, átta lækkuðu og átta stóðu í stað. Mest hækkaði gengi Oculis og Arion banka, um 1,6%, og Íslandsbanka, um 1,1%. Aðrar hækkanir voru innan við 1%. Ekkert félag lækkaði um meira en 1% í viðskiptum dagsins en gengi Eimskips lækkaði mest, um 0,8%. Gengi Oculis og Nova hafa hækkað um 14,3% síðastliðinn mánuð en gengi beggja náði sínu lægsta gildi frá skráningu í síðasta mánuði. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 254 milljónir króna, Festi, 181 milljón króna, og Haga, 171 milljón króna.