Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nova leiðir hækkanir

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,34% í dag í 1,8 milljarða króna veltu. Fjórtán félög á aðalmarkaði Kauphallarinnar hækkuðu í viðskiptum dagsins, þrjú lækkuðu og tíu stóðu í stað. Nova leiddi hækkanir en gengi félagsins hækkaði um 5,9% í dag. Gengi félagsins stendur nú í 3,94 krónum á hlut og hefur hækkað um rúm 17% frá því að það stóð í sínu lægsta gildi frá skráningu um miðjan júnímánuð. Gengi Haga hækkaði um 2,5% en önnur félög hækkuðu innan við 2%. Gengi Alvotech lækkaði um 1,3%, Sjóvá um 1% og Íslandsbanka um 0,6%. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 364 milljónir króna, Arion banka, 345 milljónir króna, og Beru, 270 milljónir.

Share this article