Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,13% í dag í 1,8 milljarða króna veltu. Fimmtán félög á Aðalmarkaði Kauphallarinnar hækkuðu í viðskiptum dagsins, fimm lækkuðu og sjö stóðu í stað. Mest hækkaði gengi Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, eða um 4,1%, og stóð í 15,20 krónum á hlut við lokun markaða. Félagið birtir í dag uppgjör fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí. Icelandair fylgdi fast á eftir með 4% hækkun og endaði í 0,83 krónum á hlut. Gengi Icelandair hefur nú hækkað um tæp 26% frá því sögulega lágmarki sem það náði fyrr í mánuðinum. Mest lækkaði gengi Haga, um tæplega 1%, en aðrar lækkanir voru öllu hóflegri. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, eða um 345 milljónir króna og stendur gengi bankans í 142 krónum á hlut. Þar á eftir komu viðskipti með bréf Hampiðjunnar, um 266 milljónir króna, og Arion banka með um 233 milljóna króna veltu.