Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair hækkaði mest

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,19% í dag í 2,2 milljarða króna veltu. Þá hækkuðu 9 félög og 15 lækkuðu. 2 félög stóðu í stað. Icelandair hækkaði mest af félögum aðalmarkaðarins. Gengi flugfélagsins fór upp um rúmlega 4% í um 35 milljóna króna veltu og stendur nú í 0,762 krónum á hlut. Þar má ætla að samningur um framlengingu vopnahlés milli Bandaríkjanna og Íran og opnun Hormússunds hafi spilað inn í. Þar á eftir kom JBT Marel með rúmlega 3% hækkun og Eimskip með tæplega 3%, en gengi þeirra stóð í 16.500 og 240 krónum á hlut við lokun. Þá hækkuðu bæði Ísfélagið og Íslandsbanki um tæplega 2%. Alvotech lækkaði mest, eða um rúmlega 6%, og stendur gengi líftæknilyfjafélagsins nú í 497 krónum á hlut. Félagið tilkynnti í morgun um að það hefði lokið hlutafjárútboði í Bandaríkjunum og samhliða því lokuðu útboði til fagfjárfesta á EES svæðinu. Dagslokagengi félagsins er því um 6% hærra en útboðsgengi félagsins. Sjá einnig Sækja allt að 20,6 milljarða á genginu 468 krónur Mest velta dagsins var með bréf Íslandsbanka, um einn milljarður króna, en gengi bankans hækkaði um tæplega 2% í viðskiptunum. Þar á eftir komu Alvotech með um 208 milljóna króna veltu og Arion banki með um 171 milljóna króna veltu.

Share this article