Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,19% í 856 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Tíu félög aðalmarkaðarins lækkuðu í viðskiptum dagsins, þrjú hækkuðu og fjórtán stóðu í stað. Hlutabréfaverð Icelandair lækkaði mest, um 3,2%, og gengi Oculis um 3,1% Heimsmarkaðsverð á Brent hráolíu hefur hækkað um tæp 5% það sem af er dags en hækkunin er rakin til áframhaldandi átaka Bandaríkjanna og Íran sem skiptust á loftárásum í nótt. Mest hækkaði gengi Haga, um 1,7%, en hækkanir á gengi Íslandsbanka og Síldarvinnslunnar voru innan við 1%. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 394 milljónir króna, sem nemur nær helmingi af heildarveltu viðskipta dagsins.