Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,79% í dag í 1,7 milljarða króna veltu. 17 félög lækkuðu, 3 félög hækkuðu og 7 stóðu í stað. Alvotech lækkaði mest af félögum Kauphallarinnar, eða um 3,9%, og endaði í 466 krónum á hlut. Þá lækkaði gengi Icelandair um 3,1% og Amaroq um 2,1%. Aðrar lækkanir voru öllu minni. Hlutabréf augnlyfjafélagsins Oculis hækkuðu mest af félögum Kauphallarinnar, eða um 6,7%, í um 40 milljóna króna veltu. Gengi félagsins stendur nú í 1.510 krónum á hlut. Gengið hefur nú hækkað um rúm 16% frá því að það náði lágmarki sínu 8. Júní síðastliðinn eftir að rannóknir sýndu að augndropar þeirra hefðu ekki þau áhrif sem ætlast var. Hin tvö félögin sem hækkuðu voru Hampiðjan og Nova. Mesta veltan var með bréf Arion banka, eða um 489 milljónir króna, en gengi bankans lækkaði um 0,8%. Þar á eftir komu viðskipti með bréf Íslandsbanka, um 450 milljónir króna.