Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,63% í dag í 2,3 milljarða króna veltu. 17 félög lækkuðu, 3 félög hækkuðu og 7 stóðu í stað. JBT Marel lækkaði mest af félögum Kauphallarinnar, eða um 3,4%, og endaði í 17.200 krónum á hlut. Þá lækkaði gengi Icelandair um 2,9% og Amaroq um 2,7%. Í morgun greindi Donald Trump frá því að hann vildi ekki eiga í frekari viðræðum um vopnahlé við Írani. Í kjölfarið hækkaði olíuverð og hlutabréfaverð lækkaði víða um heim. Gengi Oculis hækkaði mest í viðskiptum dagsins, um 1,5%. Þar á eftir komu Hagar og Sjóvá. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 698 milljónir króna, og Arion banka, 426 milljónir króna.