Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,2% í 2,3 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Sautján félög aðalmarkaðarins lækkuðu í viðskiptum dagsins og fjögur hækkuðu. Gera má ráð fyrir að lækkanir skýrist að hluta af stýrivaxtahækkun Seðlabankans í morgun og skilaboðum hans um að vextir gætu hækkað enn frekar. Sjá einnig Hækka stýrivexti upp í 7,75% Smásölufyrirtækið Festi lækkaði mest af félögum aðalmarkaðarins eða um 2,2% í 176 milljóna króna veltu og stendur nú í 313 krónum á hlut. Gengi félagsins var síðast lægra 23. mars sl. Meðal annarra félaga sem lækkuðu um 1% eða meira eru Síminn, Kaldalón, Síldarvinnslan, Skel fjárfestingarfélag og Eimskip. Gengi þriggja félaga hækkaði um eitt prósent eða meira; JBT Marel, Amaroq og Icelandair. Hlutabréfaverð Icelandair hækkaði um 1,1% í 38 milljóna króna veltu og stendur nú í 0,736 krónum á hlut.