Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 1% í dag í 1,1 milljarða veltu. Sautján af 27 félögum aðalmarkaðar Kauphallarinnar hækkuðu í viðskiptum dagsins, sex lækkuðu og fjögur stóðu í stað. Málmleitarfélagið Amaroq var hástökkvari dagsins og hækkaði um rúmlega 4%, og stendur nú í 146 krónum á hlut. Icelandair fylgdi fast á eftir með tæplega 4% hækkun, sem má að líkindum rekja til lækkunar olíuverði í dag. Sjá einnig Olíuverð ekki lægra í 3 mánuði Mest lækkaði JBT Marel, um rúmlega 1% í 3 milljón króna veltu. Alvotech lækkaði álíka mikið og stóð í 528 krónum á hlut eftir hækkanir síðustu daga. Mesta veltan var með bréf Arion banka, eða um 362 milljónir króna, en gengi bankans hækkaði um rúmlega hálft prósent og stendur nú í 190,50 krónum á hlut. Þar á eftir komu Síldarvinnslan með um 99 milljóna króna veltu og Ísfélagið með um 97 milljónir.