Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq hækkað um 20% frá byrjun mánaðar

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,28% í 1 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Átta félög hækkuðu í viðskiptum dagsins og fimm lækkuðu. Málmleitarfélagið Amaroq hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 1,85% í 36 milljóna króna veltu. Þar á eftir kom Arion banki sem hækkaði um 1,28%. Aðrar hækkanir voru innan við 1%. Gengi Amaroq stendur nú í 165 krónum á hlut og hefur hækkað um 20,4% frá byrjun þessa mánaðar. Mest lækkaði gengi Síldarvinnslunnar, um 1,25%, og Hampiðjunnar, um 1,12%. Mesta veltan í viðskiptum dagsins var með bréf Arion banka, 391 milljón króna, Íslandsbanka, 207 milljónir króna, og Reita, 148 milljónir króna.

Share this article