Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bankarnir lækka eftir uppgjör

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,54% í 1,1 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Tíu félög lækkuðu í viðskiptum dagsins og þrjú hækkuðu. Gengi augnlyfjafélagsins JBT Marel lækkaði mest í viðskiptum dagsins, um 2,3% og stendur í 17.100 krónum á hlut. Gengi Arion banka og Íslandsbanka lækkuðu bæði lítillega, en félögin birtu bæði uppgjör fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða í gær. Sjá einnig Arð­semi eykst og af­komu­spá hækkuð Sjá einnig 15,5% arðsemi hjá Arion á öðrum fjórðungi Mest hækkaði gengi Amaroq, um 1,75%. Félagið hefur nú hækkað um tæp 23% síðastliðinn mánuð en málmleitarfélagið verður skráð á aðalmarkað í London á morgun. Mesta veltan var með bréf Arion banka, 357 milljónir króna, Íslandsbanka, 274 milljónir króna, og Haga, 120 milljónir króna. Sjá einnig Amaroq á aðal­markað í London á föstu­dag

Share this article