Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Oculis lækkar um tæp 4%

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,25% í 1,4 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Níu félög aðalmarkaðarins lækkuðu í viðskiptum dagsins, átta hækkuðu og tíu stóðu í stað. Hlutabréfaverð augnlyfjaframleiðandans Oculis lækkaði mest, um 3,8%, í tæplega milljón króna veltu og stendur gengið nú í 1640 krónum á hlut. Þá lækkaði gengi Haga og Síldarvinnslunnar um 1,6%. Gengi Oculis hefur nú lækkað um tæp 7% á tveimur dögum. Gengi JBT Marel hækkaði mest í viðskiptum dagsins, um 1,7%, og stendur í 17.500 krónum á hlut. Þar á eftir komu Nova með 1% hækkun og Icelandair og Arion banki bæði með 0,8% hækkun. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 429 milljónir króna, og Brims og Arion banka, bæði 230 milljónir króna.

Share this article