Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq hækkar um meira en 6%

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,5% í 1,9 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Sextán félög hækkuðu í viðskiptum dagsins og fjögur lækkuðu. Málmleitarfélagið Amaroq, sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum á Grænlandi, hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 6,6% í ríflega 230 milljóna króna veltu. Gengi Amaroq stendur nú í 160 krónum á hlut og hefur ekki verið jafnhátt síðan í lok maí. Hlutabréfaverð félagsins hækkaði verulega í byrjun árs, samhliða því að gullverð náði methæðum, og fór dagslokagengið hæst í 244 krónur í lok janúar. Síðan þá hefur gengið fallið talsvert, m.a. þar sem hækkun gullverðs hefur gengið nokkuð til baka og nemur í dag um 4.080 dölum á únsu. Málmleitarfélagið undirbýr nú skráningu á aðalmarkað kauphallarinnar í London en félagið tilkynnti í byrjun mánaðar að skráningin muni taka gildi í fyrsta lagi 31. júlí nk. Félagið tilkynnti í febrúar um að það hefði tekið ákvörðun um að flytja félagið af AIM-vaxtamarkaðnum yfir á aðalmarkað kauphallarinnar í London. Samhliða var tilkynnt um að það hefði óskað eftir afskráningu úr TSX Venture-kauphöllinni í Kanada. Iceland Seafood hækkaði næst mest af félögum Kauphallarinnar eða um 3,4% í tæplega 40 milljóna króna veltu og stendur gengi félagsins nú í 4,3 krónum á hlut. Þar á eftir kom Alvotech í 2,8% hækkun og stendur gengi líftæknifyrirtækisins nú í 441 krónu á hlut. Icelandair lækkaði mest af félögum aðalmarkaðarins eða um 1,9% og stóð gengi flugfélagsins í 0,736 krónum á hlut við lokun markaðarins. Velta með bréf félagsins nam þó aðeins 6 milljónum króna.

Share this article