Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,42% í dag í 1,7 milljarða króna veltu. 11 félög á aðalmarkaði Kauphallarinnar lækkuðu í viðskiptum dagsins, 4 hækkuðu og 12 stóðu í stað. Mest lækkaði gengi Alvotech, eða um 3,6%, og stóð í 453 krónum á hlut við lokun markaða. Þar á eftir kom gengi Icelandair með 3,1% lækkun og endaði í 0,8 krónum á hlut. Gengi félagsins hækkaði töluvert í viðskiptum gærdagsins. Mest hækkaði gengi JBT Marel, um 1,2%, en önnur félög hækkuðu öllu minna. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, eða um 560 milljónir króna og stendur gengi bankans í 140,8 krónum á hlut. Þar á eftir komu viðskipti með bréf Arion banka, um 293 milljónir króna, og Reitir með 185 milljóna króna veltu.