Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Viðskiptablaðið

Alvotech hækkað um 19% í vikunni

  • What: Alvotech stock price increased significantly
  • Impact: Financial market update
Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,11% í 1,5 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Nokkuð var um lækkanir en 13 félög lækkuðu í viðskiptum dagsins á meðan sjö hækkuðu og átta stóðu í stað. Mest lækkaði gengi Skaga, um rúmlega 2%, sem endaði í 17,90 krónum á hlut. Eik og Oculis lækkuðu um 2%. Lækkanir annarra félaga voru öllu hóflegri. Hlutabréfaverð Alvotech hækkaði mest, eða um 4,39%, og stendur nú í 534,50 krónum á hlut. Töluverð hreyfing hefur verið á gengi félagsins eftir að tilkynnt var á mánudag að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hefði tekið til umsagnar og afgreiðslu umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir fyrirhugaða lyfjahliðstæðu félagsins. Sjá einnig Gengi Alvotech hækkar um 11% Amaroq hækkaði um 2,5%, og stendur í 141,50 krónum á hlut. Kaldalón, Festi, Heimar, Arion banki og Icelandair hækkuðu einnig, öll undir einu prósenti. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, eða um 533 milljónir króna.

Share this article