Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,29% í íslensku kauphöllinni í 2,6 milljarða veltu í dag. Alls lækkuðu 10 félög í viðskiptum dagsins, 6 hækkuðu og 11 stóðu í stað. Alvotech hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar. Gengið hækkaði um 6,8% eftir að hafa tekið kipp stuttu fyrir lokun markaða og stendur gengi félagsins nú í 518 krónum á hlut. Þar á eftir komu Oculis og Eik með um 1,4% hækkun hvort. Gengi Alvotech hefur nú hækkað um 40% síðan það náði sínu allra lægsta stigi 3. júní síðastliðinn. Á móti lækkaði gengi Icelandair mest, eða 3,75%, og stendur gengi flugfélagsins nú í 0,77 krónum á hlut. Málmleitarfélagið Amaroq fylgir þar á eftir með um 3,4% lækkun og endaði í 143 krónum á hlut. Mesta veltan á aðalmarkaði var með bréf Íslandsbanka, eða um 976 milljónir króna, en gengi bankans lækkaði um tæplega 1% í viðskiptunum. Þar á eftir komu Arion banki með um 502 milljónir króna og Hagar með um 256 milljóna króna veltu.