Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Alvotech lækkaði mest í dag

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,19% í dag í 1,4 milljarða veltu. 13 félög hækkuðu, 6 lækkuðu og 8 stóðu í stað. Gengi Alvotech lækkaði mest af félögum Kauphallarinnar, eða um 6,4%, í 81 milljóna króna veltu. Gengi félagsins stendur nú í 485 krónum á hlut. Gengi fasteignafélagsins Eikar lækkaði um 1,4% en aðrar lækkanir voru minni. Heimar hækkaði mest í dag, eða um tæplega 1,8%, og endaði í 34,4 krónum á hlut. Þar á eftir kom Icelandair sem hækkaði um 1,6%, og stendur gengi flugfélagsins nú í 0,782 krónum á hlut. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, eða um 603 milljónir króna, en gengi bankans hækkaði um tæplega 1%. Þar á eftir komu viðskipti með bréf Arion banka, um 355 milljónir króna. Velta með hin félögin var talsvert minni.

Share this article