Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nova hækkar í lítilli veltu

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,14% í dag í 694 milljóna króna veltu. Þrettán félög á aðalmarkaði Kauphallarinnar lækkuðu í viðskiptum dagsins, sex lækkuðu og átta stóðu í stað. Gengi Nova hækkaði um 5,17%, mest allra félaga í dag, og rétti lítillega úr kútnum eftir að það náði sínu lægsta gildi frá skráningu fyrr í mánuðinum. Gengi félagsins stendur nú í 3,66 krónum á hlut. Þar á eftir fylgdi gengi Oculis sem hækkaði um 2,7% og stendur í 1.525 krónum á hlut. Mesta lækkunin var á gengi Ísfélagsins, um 1,9% og stendur gengi félagsins í 152 krónum á hlut. Mesta veltan var með hlutabréf Arion banka, 176 milljónir króna, og Íslandsbanka, 134 milljónir króna.

Share this article