Úrvalsvísitalan lækkaði um 1% í 2,8 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Hlutabréfaverð sextán félaga hækkaði í viðskiptum dagsins og gengi hlutabréfa sjö félaga lækkaði. Gengi augnlyfjafyrirtækisins Oculis hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 10,8% í 99 milljóna króna veltu og stendur félagið nú í 1.690 krónum á hlut. Gengi félagsins hefur nú hækkað um 30% frá því það náði sínu allra lægsta gildi fyrr í mánuðinum. Gengi JBT Marel hækkaði um rúm 4% í dag og gengi Alvotech og Eimskips hækkuðu bæði um meira en 3%. Mesta veltan í viðskiptum dagsins var með hlutabréf Arion banka, 714 milljónir króna, og Íslandsbanka, 694 milljónir króna.