Úrvalsvísitalan lækkaði um 6,4% í 5,2 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Alls lækkaði hlutabréfaverð hjá 25 af 27 félögum Kauphallarinnar. Augnlyfjaþróunarfélagið Oculis lækkaði langmest eða um 50,1% í yfir hálfs milljarðs króna veltu á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Gengi Oculis stóð í 1.820 við lokun Kauphallarinnar en til samanburðar var dagslokagengi félagsins á föstudaginn 3.650 krónur á hlut. Gengi félagsins var síðast lægra í október 2024. Sjá einnig Oculis hrynur í verði í kjölfar tilkynningar Markaðsvirði félagsins lækkaði um ríflega 125 milljarða króna, fór úr 249 milljörðum í 123 milljarða króna. Ætla má að íslenskir fjárfestar, að stórum hluta lífeyrissjóðir, eigi um 25-30% í Oculis. Lækkunina má rekja til þess að félagið greindi frá því að tvær lykilrannsóknir á augndropum OCS-01 við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki hefðu ekki náð markmiði sínu. Þess má geta að Oculis sótti 110 milljónir dala, eða um 13,6 milljarða króna, í hlutafjárútboði í lok október 2025, þar sem útgáfugengið var 20,25 dalir á hlut eða um 2.500 krónur. Mikil lækkun á gengi Oculis, sem var fjórða verðmætasta félagið í Kauphöllinni fyrir helgi, hafði smitáhrif á íslenska hlutabréfamarkaðinn. Sjóvá lækkaði næst mest af félögum aðalmarkaðarins eða um 4,3% í 220 milljóna króna veltu og stendur gengi félagsins nú í 39,8 krónum á hlut. Sjóvá átti tæplega 1,1 milljarðs króna hlut í lok fyrsta ársfjórðung, eða sem nam 1,8% af eignasafni tryggingafélagsins. Meðal annarra félaga sem lækkuðu um 3% eða meira voru Alvotech, Amaroq, Síminn og Kaldalón.