Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Milljarða króna högg vegna Oculis

Read Full Article →

Hlutabréfaverð augnlyfjaþróunarfélagsins Oculis hefur verið á hraðri niðurleið, bæði í Kauphöllinni hér heima sem og vestanhafs, frá því í lok síðustu viku er félagið tilkynnti um niðurstöður rannsókna á virkni augndropa. Til að gera langa sögu stutta ollu þær niðurstöður fjárfestum miklum vonbrigðum og endurspeglast það í að gengi félagsins hefur lækkað um 57%, þegar þetta er skrifað, frá lokun markaða hér á landi síðastliðinn föstudag. Við lokun markaða á föstudag stóð gengið í 3.650 krónum á hlut en stóð í 1.560 krónum við lokun Kauphallarinnar á ‏þriðjudaginn. Ætla má að viðbrögðin á markaði skýrist að hluta að því að skuldsettir fjárfestir þurftu að mæta veðköllum frá fjármálastofnunum vegna lækkunarinnar. Viðmælendur Viðskiptablaðsins á fjármálamarkaði telja að hlutabréfaverð Oculis gæti verið næstu 2-3 vikur að finna nýjan jafnvægispunkt, ef svo má orða það. Þess má geta að erlendir greiningaraðilar færðu niður verðmöt sín á fyrirtækinu um 17-45% í kjölfar tilkynningarinnar. Kemur verst við Íslandssjóði Íslenskir hlutabréfasjóðir eru með nokkuð stóran hluta af eignarsafni sínu í Oculis. Verðfall líftæknifyrirtækisins kemur, eins og Viðskiptablaðið greindi frá á mánudag, verst við þrjá af stærstu hlutabréfasjóðum Íslandssjóða enda Oculis verið meðal stærstu eigna þeirra. Samkvæmt upplýsingablöðum sjóðanna, sem miðast við 1. maí, var IS EQUUS hlutabréf með 5,6 milljarða króna í stýringu, IS Hlutabréfasjóðurinn með 5,9 milljarða og IS Úrvalsvísitölusjóðurinn með 3,6 milljarða. Á sama tíma var Oculis stærsta einstaka eign bæði í EQUUS og Hlutabréfasjóðnum, með 20,1% og 14,7% vægi og meðal stærstu eigna Úrvalsvísitölusjóðsins með 8,5% vægi. Miðað við þá stöðu nam virði eignarhlutar sjóðanna í Oculis í byrjun maí um 1.123 milljónum króna hjá EQUUS, 867 milljónum hjá Hlutabréfasjóðnum og 308 milljónum hjá Úrvalsvísitölusjóðnum. Þegar þetta er skrifað nemur lækkun á gengi hlutabréfa Oculis frá því í byrjun maí 53,3% í Kauphöll Nasdaq hér á landi. Virðisrýrnun sjóðanna þriggja nemur rúmlega 1,2 milljörðum króna. Sjóðir Íslandssjóða fjárfestu fyrst í Oculis á fyrri hluta ársins 2023 og hefur staðan síðan verið byggð upp í áföngum í samræmi við fjárfestingarstefnu viðkomandi sjóða og almenna markaðsþróun, að því er segir í svari sjóðastýringafyrirtækisins við fyrirspurn Viðskiptablaðsins. „Vægi Oculis í sjóðunum skýrist bæði af fjárfestingarákvörðunum og þróun á gengi hlutabréfa félagsins, sem getur haft veruleg áhrif á hlutfall einstakra eigna í eignasöfnum yfir tíma.“ Íslandssjóðir segja að í tilfelli EQQUS og Hlutabréfasjóðsins byggi samsetning eignasafna á greiningu og mati í samræmi við fjárfestingarstefnu hvers sjóðs, með áherslu á faglega greiningu og dreifingu áhættu. Samsetning Úrvalsvísitölusjóðsins byggi hins vegar á OMXI15CAP vísitölu Nasdaq. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér og blaðið hér .

Share this article