Um 8,3% af heildar eignasafni íslenskra hlutabréfasjóða í lok maí má rekja til eignarhluta í augnlyfjaþróunarfélaginu Oculis samkvæmt samantekt greiningarfyrirtækisins Akkurs. „Gera má ráð fyrir að lækkunin á bréfunum í byrjum júní hafi kostað sjóðina rúmlega 3,5 milljarða króna eða um 5% af eigin fé,“ segir í greiningu sem Akkur birti í morgun. Hlutabréfaverð Oculis lækkaði um meira en helming í byrjun mánaðar eftir að félagið tilkynnti um niðurstöður rannsókna á virkni augndropalyfsins OCS-01 við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki sem ollu miklum vonbrigðum. Gengi Oculis stóð í 3.650 krónum á hlut fyrir tilkynninguna en lækkaði í kjölfarið um allt að 64% og fór lægst í 1.300 krónur þann 8. júní sl. Hlutabréfaverð félagsins stendur nú í 1.400 krónum á hlut. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um þann 2. janúar kom gengislækkun Oculis verst við hlutabréfasjóði Íslandssjóða en hlutabréf félagsins voru stærsta eign IS EQUUS hlutabréfum (21,7% vægi) og IS Hlutabréfasjóðnum (16,3% vægi). Sjá einnig Milljarða króna högg vegna Oculis Allir hinir hlutabréfasjóðirnir í samantekt Akkurs áttu eignarhluti í Oculis, að arðgreiðslusjóði Stefnis undanskildum. Vægi Oculis í eignarsafni þeirra var á bilinu 5,4-8,9% um síðustu mánaðarmót. Til samanburðar var vægi Oculis í OMXI15 úrvalsvísitölunni 8,9%. Úttekt Akkurs byggir á upplýsingum sem sjóðirnir birta sjálfir. Sjóðirnir birta lista yfir 10 stærstu eignir sínar í hverjum mánuði ásamt stærð sjóðsins hverju sinni.