Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengis­hrun Ocu­lis veldur sjóðum Ís­lands­sjóða milljarðs tapi

Read Full Article →

Þrír stærstu hlutabréfasjóðir Íslandssjóða áttu samanlagt um 2,3 milljarða króna í Oculis í byrjun maí. Bréf félagsins í Kauphöllinni á Íslandi hafa fallið um ríflega 50% það sem af er morgni. Gengið stóð í 3.650 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar á föstudaginn en stendur nú í 1.890 krónum. Hlutabréfin féllu um allt að 49,4% á Nasdaq-markaðnum í Bandaríkjunum á föstudag eftir að félagið greindi frá því að tvær lykilrannsóknir á augndropum OCS-01 hefðu ekki náð markmiði sínu. Lækkunin á Íslandi nú í morgun er því í samræmi við gengisþróunina á Wall Street. Sjá einnig Oculis lækkaði um 49,4% í gær - eða 122 milljarða Verðfallið kemur illa við þrjá af stærstu hlutabréfasjóðum Íslandssjóða, en Oculis hefur verið ein helsta eign þeirra. Íslandssjóðir er sjóðastýringafélag í eigu Íslandsbanka. Samkvæmt upplýsingablöðum sjóðanna, sem miðast við 1. maí, var IS EQUUS hlutabréf með 5.589 milljónir króna í stýringu, IS Hlutabréfasjóðurinn með 5.898 milljónir og IS Úrvalsvísitölusjóðurinn með 3.620 milljónir. Á sama tíma var Oculis stærsta einstaka eign bæði í EQUUS og Hlutabréfasjóðnum, með 20,1% og 14,7% vægi og meðal stærstu eigna Úrvalsvísitölusjóðsins með 8,5% vægi. Miðað við þá stöðu nam virði eignarhlutar sjóðanna í Oculis í byrjun maí um 1.123 milljónum króna hjá EQUUS, 867 milljónum hjá Hlutabréfasjóðnum og 308 milljónum hjá Úrvalsvísitölusjóðnum. Vægi hlutabréfa og stærð sjóðanna miðast við 1. maí og kunna að hafa breyst frá þeim tíma, bæði vegna viðskipta sjóðanna og verðþróunar Oculis á tímabilinu. Nýtt upplýsingablað ætti að verða birt innan skamms. Miðað við 50,96% lækkun í fyrstu viðskiptum dagsins nemur virðisrýrnun sjóðanna þriggja rúmlega 1,17 milljörðum króna. Hún skiptist í 572 milljónir hjá EQUUS hlutabréfum, 442 milljónir hjá Hlutabréfasjóðnum og 157 milljónir hjá Úrvalsvísitölusjóðnum. Miðað við óbreytt verð á öðrum eignum sjóðanna myndi það samsvara rúmlega 10% lækkun á hreinu eignavirði EQUUS-sjóðsins, um 7,5% lækkun hjá Hlutabréfasjóðnum og rúmlega 4% lækkun hjá Úrvalsvísitölusjóðnum. Þriðja stærsta eign EQUUS-sjóðsins er eignarhlutur í sérhæfða fjárfestingasjóðnum Alpha hlutabréf, sem einnig er í stýringu Íslandssjóða. Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst hefur sá sjóður heimild til gírunar, það er að taka lán gegn veðum í verðbréfum. Ef sá sjóður er einnig með stöðu í Oculis gætu áhrifin á EQUUS-sjóðinn verið meiri en hér hefur verið reiknað með. Sömu tveir sjóðsstjórar stýra öllum fjórum sjóðunum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Íslandssjóða.

Share this article