Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Oculis aldrei verið lægra frá skráningu í Kauphöllina

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,4% í 2,1 milljarðs króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Fjórtán félög aðalmarkaðarins lækkuðu og tíu hækkuðu. Mesta breytingin var á gengi Kviku banka sem lækkaði um 14,8% og stendur nú í 13,85 krónum á hlut. Það má rekja til þess að í dag er arðleysisdagur vegna 10 milljarða króna arðgreiðslu, eða sem nemur 2,35 krónum á hlut. Augnlyfjaþróunarfélagið Oculis lækkaði um 8,1% í tæplega 30 milljóna króna veltu á íslenska hlutabréfamarkaðnum. Gengi Oculis stóð í 1.420 við lokun Kauphallarinnar en til samanburðar var dagslokagengi félagsins á föstudaginn síðasta 3.650 krónur á hlut. Gengi Oculis lækkaði því alls um 61% í vikunni og nemur markaðsvirði . Hlutabréfaverð Oculis á íslenska hlutabréfamarkaðnum hefur aldrei verið lægra frá skráningu á aðallista Nasdaq á Íslandi í apríl 2024. Gengi Oculis, sem er með aðalskráningu hjá Nasdaq í Bandaríkjunum, stendur í 11,3 dölum á hlut á bandaríska markaðnum þegar fréttin er skrifuð og hefur ekki veirð lægra síðan í júlí 2024. Lækkunina má rekja til þess að félagið greindi frá því í lok síðustu viku að tvær lykilrannsóknir á augndropum OCS-01 við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki hefðu ekki náð markmiði sínu. Þess má geta að Oculis sótti 110 milljónir dala, eða um 13,6 milljarða króna, í hlutafjárútboði í lok október 2025, þar sem útgáfugengið var 20,25 dalir á hlut eða um 2.500 krónur. Hlutabréfaverð málmleitarfélagsins Amaroq lækkaði einnig um 4,5% í 35 milljóna króna veltu og stendur nú í 149 krónum á hlut. Gengi Amaroq hefur nú lækkaði um 18% í ár. Gengi tveggja félaga hækkaði um meira en 2% í dag; Eimskips og Brims.

Share this article