Íslenskir hlutabréfasjóðir eru með nokkuð stóran hluta af eignasafni sínu í Oculis. Verðfall líftæknifyrirtækisins kemur, eins og Viðskiptablaðið greindi frá á mánudag, verst við þrjá af stærstu hlutabréfasjóðum Íslandssjóða enda hefur Oculis verið meðal stærstu eigna þeirra. Virðisrýrnun sjóðanna þriggja nemur alls um 1,2 milljörðum króna. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu eru hlutabréfasjóðir Íslandssjóða eðli málsins samkvæmt ekki þeir einu sem eiga hluti í Oculis. Fjórir hlutabréfasjóðir Landsbréfa, sem eru á bilinu 4,3 til 11,6 milljarðar króna að stærð, eiga hluti í Oculis og nemur vægi hlutanna í heildareignum sjóðanna á bilinu 6,3% til 8,4% samkvæmt upplýsingablöðum sem dagsett eru 30. apríl sl. Miðað við stöðuna þá námu heildareignir sjóðanna í Oculis 1.975 milljónum króna en eftir gengislækkunina nemur virði eignarhlutanna um 936 milljónum króna. Virðisrýrnun sjóðanna nemur því rúmlega einum milljarði króna. Stærsti hlutabréfasjóður landsins, Stefnir – Innlend hlutabréf, er með heildareignir upp á um 20,4 milljarða króna. Samkvæmt heimasíðu sjóðsins átti hann hluti í Oculis með markaðsvirði sem nam tæplega 1,1 milljarði króna 30. apríl sl. Vægi hlutarins í Oculis af heildareignum sjóðsins nam á þeim tíma 5,4%. Eftir gengislækkunina, sem nemur rúmlega 53% frá því í lok apríl þegar þetta er skrifað, nemur markaðsvirði hlutanna um hálfum milljarði króna. Virðisrýrnunin nemur því um 571 milljón króna. Af öðrum stórum hlutabréfasjóðum má nefna að vægi hlutabréfa í Oculis hjá Kviku – Innlend hlutabréf, sem er með heildareignir upp á um 8,7 milljarða, var 9,6% þann 30. apríl sl. Markaðsvirði hlutarins var samkvæmt því á þeim tíma um 839 milljónir króna en eftir gengislækkun nemur það um 392 milljónum. Virðisrýrnunin nemur því um 447 milljónum króna. Að öllu framangreindu sögðu ber að hafa í huga að verðsveiflur eru eðlilegur fylgifiskur í starfsemi hlutabréfasjóða. Fjárhagsleg áhætta þeirra er misjöfn og ræðst meðal annars af fjárfestingastefnum þeirra. Sem dæmi er beinlínis varað við því á heimasíðu IS EQUUS hlutabréfa, sem átti eins og fyrr segir hvað mest undir af sjóðunum í Oculis, að sveiflur í gengi sjóðsins geti verið miklar og niðursveiflur á hlutabréfamörkuðum langar. Því er mælt með sjóðnum fyrir fjárfesta sem vilja ávaxta fé í fimm ár eða lengur. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .