Ætla má að íslenskir fjárfestar eigi hátt í 30% hlut í Oculis. Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst eiga íslenskir lífeyrissjóðir samtals yfir 16% hlut í Oculis sem var metinn á 24 milljarða króna í lok síðasta árs, samkvæmt upplýsingum úr ársreikningum lífeyrissjóðanna. Af þeim er Gildi með stærstan eignarhlut í Oculis, eða um 4,3% hlut sem var metinn á 6,4 milljarða króna í lok árs 2025. Sé gert ráð fyrir óbreyttum eignarhlut hjá lífeyrissjóðunum má ætla að markaðsvirði eignarhlutar þeirra hafi numið tæplega 35 milljörðum króna í lok maí, þar sem gengi félagsins hafði hækkað um meira en 40% frá áramótum. Eftir lækkunina það sem af er vikunni má gera ráð fyrir að eignarhlutur íslenskra lífeyrissjóða nemi samtals 15 milljörðum króna. Hjá nær öllum sjóðum nemur eignarhlutur í Oculis innan við 1% af heildareignum. Sex lífeyrissjóðir – Birta, Gildi, Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE), Festa, SL og Íslenski – eru meðal hluthafa Brunns vaxtarsjóðs slhf. sem fjárfesti fyrst í Oculis árið 2016. Vísisjóðurinn, sem var þriðji stærsti hluthafi Oculis þegar félagið var skráð á markað, afhenti hluthöfum sínum allan 5,4% eignarhlut sinn í félaginu á genginu 15,9 dalir á hlut í janúar 2025. Eignarhlutur Brunns vaxtarsjóðs hafði margfaldast frá upphaflegu fjárfestingunni. Oculis lauk tveimur hlutafjárútboðum í fyrra þar sem félagið sótti annars vegar 110 milljónir dala í febrúar 2025 og hins vegar 110 milljónir dala í október 2025. Samkvæmt Innherja tóku íslenskir fjárfestar, einkum lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir og tryggingafélög, þátt fyrir 6,9 milljarða króna í fyrra útboðinu og um 1,3 milljarða í því seinna. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .