Hlutabréf Oculis hafa lækkað um 51 % í Kauphöll Íslands við opnun markaða í morgun. Lækkunin kemur í kjölfar þess að bréf félagsins féllu um 49,4 prósent á Nasdaq-markaðnum í Bandaríkjunum á föstudag. Bréf Oculis lokuðu í 3.650 krónum í Kauphöll Íslands á föstudag. Gengið stóð í 1.795 krónum við opnun markaða í morgun og nemur lækkunin því um 50,8 % frá lokagenginu á föstudag. Verðfallið vestanhafs varð eftir að Oculis birti niðurstöður úr tveimur fasa III rannsóknum á augndropalyfinu OCS-01 við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki. Rannsóknirnar náðu ekki aðalmarkmiði sínu um bætta sjónskerpu eftir 52 vikna meðferð og brugðust fjárfestar harkalega við fréttunum. Við það rýrnaði markaðsvirði félagsins um jafnvirði 122 milljarða króna á einum degi. Sjá einnig Oculis hrynur í verði í kjölfar tilkynningar Sjá einnig Oculis lækkaði um 49,4% í gær - eða 122 milljarða Riad Sherif, forstjóri Oculis, viðurkenndi vonbrigðin í tilkynningu félagsins á föstudag. „Við erum að sjálfsögðu vonsvikin yfir því að sú verulega og viðvarandi minnkun á þykkt sjónhimnu sem sást í báðum rannsóknunum skyldi ekki leiða til bættrar sjónskerpu við 52. viku." Í kjölfar niðurstaðnanna hefur félagið ákveðið að sækja ekki um markaðsleyfi fyrir lyfið við þessum sjúkdómi á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Oculis var stofnað af prófessorunum Einari Stefánssyni og Þorsteini Loftssyni. Félagið hyggst nú beina fjármunum og þróunarstarfi að öðrum lyfjaefnum í þróun. Þá segir félagið fjárhagsstöðu sína áfram sterka, en það var með um 278 milljónir dala, jafnvirði rúmlega 34 milljarða króna, í handbæru fé og skammtímafjárfestingum í lok fyrsta ársfjórðungs. Að mati stjórnenda nægir það til að fjármagna starfsemina fram á síðari hluta árs 2029.