Líftæknifyrirtækið Oculis sendi frá sér tilkynningu fyrir stundu þar sem kynntar voru niðurstöður rannsókna á virkni augndropa. Eru þær mikil vonbrigði. Hlutabréf félagsins hafa lækkuðu um 23,5% á Nasdaq í kvöld, en félagið er einnig skráð í íslensku kauphöllinni. Gengi stendur í 22,7 dölum en markaðurinn lokaði kl. 20 á íslenskum tíma. Tvær rannsóknir Oculis, Diamond 1 og 2, á OCS-01 augndropum við sjónhimnubjúg hafi ekki náð aðalmarkmiði sínu. Fyrirtækið hyggst ekki sækja um markaðsleyfi fyrir lyfið í ljósi niðurstöðunnar að svo stöddu og beinir nú þróunarstarfi sínu og fjármagni í önnur verkefni. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar. „Við erum að sjálfsögðu vonsvikin yfir því að sú verulega og viðvarandi minnkun á þykkt sjónhimnu sem sást í báðum rannsóknunum skyldi ekki leiða til bættrar sjónskerpu við 52. viku," sagði Riad Sherif, forstjóri Oculis. Sherif þakkaði sjúklingum, rannsakendum og klínískum sérfræðingum fyrir þátttökuna og benti á að sterk fjárhagsstaða geri félaginu kleift að halda áfram með öflugt verkefnasafn á lokastigi. Sjónhimnubjúgur er vökvasöfnun í gulu deplinum (macula), litla miðsvæði sjónhimnunnar sem ber ábyrgð á skarpri miðjusjón. Þegar vefurinn þrútnar raskast lestrar- og smáatriðasjón, og er sykursýkistengdur sjónhimnubjúgur ein helsta orsök sjónskerðingar hjá fólki með sykursýki. Aðalmarkmið rannsóknanna, meðalbreyting á bestu leiðréttu sjónskerpu (BCVA) samkvæmt ETDRS-stafaskori frá upphafi til 52. viku, náðist ekki í hvorugri rannsókninni. Þá náðist heldur ekki mikilvægt aukamarkmið um hlutfall sjúklinga sem náðu að minnsta kosti 15 stafa bætingu í sjónskerpu. Aukamarkmið um þykkt sjónhimnu, mælt með OCT-myndgreiningu, sýndi hins vegar verulega og viðvarandi minnkun með OCS-01 samanborið við samanburðarlausn á öllum heimsóknum í Diamond 2 og á öllum heimsóknum nema við 52. viku í Diamond-1. Lyfið þoldist vel og engar óvæntar aukaverkanir komu fram. Tilkynningin í heild sinni: Oculis tilkynnir um helstu niðurstöður úr fasa 3 DIAMOND rannsóknunum á OCS-01 við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki 29. maí 2026 kl. 19:54:00Oculis Holding AG Kauphallartilkynning Zug, Sviss, May 29, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Aðalviðmiðið (e. primary endpoint) um breytingu á sjónskerpu frá upphafspunkti og fram að viku 52 náðist í hvorugri fasa 3 rannsókninni Önnur viðmið (e. secondary endpoint) um breytingu á þykkt sjónhimnunnar sýndi fram á verulega og varanlega minnkun með OCS-01 miðað við lyfleysu í báðum rannsóknunum Oculis mun beina þróunarstarfi og fjármagni að yfirstandandi PIONEER-skráningaráætluninni á Privosegtor við sjóntaugakvillum og PREDICT-1 skráningarrannsókninni á Licaminlimab við augnþurrki (e. dry eye disease) Fjárhagsstaðan er áfram sterk þar sem handbært fé, ígildi handbærs fjárs og skammtímafjárfestingar námu um 278 milljónum Bandaríkjadala, miðað við 31. mars 2026, sem tryggir rekstrarfé fram á síðari hluta árs 2029 Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS / XICE: OCS) (Oculis), alþjóðlegt líftæknifyrirtæki með áherslu á nýsköpun við meðferð á augn- og augntaugasjúkdómum í því skyni að mæta verulegum óuppfylltum læknisfræðilegum tilkynnti í dag um helstu niðurstöður úr fasa 3 DIAMOND-1 og DIAMOND-2 rannsóknunum á OCS-01 augndropum hjá sjúklingum með sjónhimnubjúg af völdum sykursýki (DME). DIAMOND (DIAmetic Macular edema patients ON a Drop) rannsóknaráætlunin samanstóð af tveimur fasa 3, tvíblindnum, slembnum, fjölsetra rannsóknum þar sem lagt var mat á virkni og öryggi OCS-01 augndropa hjá sjúklingum með sjónhimnubjúg af völdum sykursýki eftir 52 vikna meðferð. Yfir 800 sjúklingar voru innritaðir í báðar skráningarrannsóknirnar á 119 rannsóknarstöðvum í Bandaríkjunum og fleiri löndum. Aðalviðmiðið, sem var breyting á sjónskerpu með ETDRS-sjónprófi með stafastigum (BCVA ETDRS) í viku 52, náðist í hvorugri rannsókninni. Önnur viðmið um breytingu á þykkt sjónhimnunnar, mælt með OCT, sýndi fram á verulega og varanlega minnkun með OCS-01 miðað við lyfleysu í öllum heimsóknum, nema í viku 52 í DIAMOND-1. Lykilaukaviðmiðið (e. key secondary endpoint) um hlutfall sjúklinga með ≥15 stafa aukningu í BCVA náðist í hvorugri rannsókninni. OCS-01 þoldist vel, engar óvæntar aukaverkanir komu fram og heildaröryggi þess var í samræmi við fyrri rannsóknir. Byggt á niðurstöðunum, að svo stöddu, áformar Oculis ekki að sækja um leyfi hjá FDA fyrir OCS-01 vegna sjónhimnubjúgs af völdum sykursýki (DME). Riad Sherif, M.D., framkvæmdastjóri Oculis, sagði: “Við erum að sjálfsögðu vonsvikin yfir því að umtalsverð og varanleg minnkun á þykkt sjónhimnunnar sem kom fram í báðum rannsóknunum skilaði sér ekki í bætingu á BCVA kvarða í viku 52. Í þessum tveimur rannsóknum vann teymið okkar með 119 rannsóknarstöðvum um allan heim í fjölmörgum löndum og sýndi fram á framúrskarandi framkvæmdahæfni. Við þökkum sjúklingum, rannsakendum og öllum klínísku sérfræðingunum okkar sem tóku þátt í DIAMOND rannsóknaráætluninni. Sterk fjárhagsstaða okkar gerir okkur kleift að halda áfram að þróa öflug lyf sem komin eru á síðari stig. Á meðan við ljúkum yfirferð gagna DIAMOND rannsóknaráætlunarinnar munum við með markvissum hætti beina kröftum okkar að því framgangi þróunarlyfja okkar, þar á meðal fjölmörg tækifæri fyrir Privosegtor, sem byrjar með PIONEER-áætluninni fyrir Privosegtor við sjóntaugakvillum, og PREDICT-1 rannsókninni fyrir Licaminlimab til að efla einstaklingsmiðaða lyfjameðferð við augnþurrki”.