Hlutabréf líflyfjafyrirtækisins Oculis hækkuðu um 6,57% í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Hækkunin kemur í kjölfar tilkynningar fyrirtækisins um jákvæð viðbrögð frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna, FDA, vegna fyrirhugaðrar þróunar á lyfjaefninu Privosegtor. Taugasjúkdómadeild FDA staðfesti að Oculis gæti byggt nýja umsókn um rannsóknarlyf, svonefnda IND-umsókn, á fyrirliggjandi gögnum um Privosegtor. Ekki verði þörf á frekari forklínískum rannsóknum áður en umsóknin verður lögð fram. Oculis stefnir að því að skila henni á fjórða ársfjórðungi 2026. FDA tók jafnframt jákvætt í fyrirhugaða þróunaráætlun fyrirtækisins. Gert er ráð fyrir að framtíðarrannsóknir nái bæði til MS-sjúklinga sem fá sjóntaugabólgu og þeirra sem fá annars konar bráð köst. Eftirlitið studdi einnig að meginendapunktur rannsókna yrði metinn eftir þrjá mánuði og að notaður yrði sami skammtur og í yfirstandandi PIONEER-1-rannsókn. Privosegtor er rannsóknarlyf sem ætlað er að vernda tauga- og taugasímafrumur gegn skemmdum. Lyfjaefnið er einnig í þróun til meðferðar við sjóntaugabólgu, sem getur meðal annars komið fram við upphaf MS-sjúkdóms eða sem hluti af MS-kasti. Privosegtor hefur ekki fengið markaðsleyfi og jákvæð viðbrögð FDA fela ekki í sér samþykki lyfsins. Þau greiða hins vegar fyrir því að Oculis geti hafið formlegt klínískt þróunarferli fyrir þessa nýju ábendingu án frekari rannsókna á dýrum eða öðrum forklínískum rannsóknum.