Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Markaðsvirði Ocu­lis komið undir 100 milljarða

Read Full Article →

Hluta­bréf Ocu­lis héldu áfram að lækka í Kaup­höllinni í dag og hefur gengið lækkað um rúm 6% í fyrstu við­skiptum. Hluta­bréf félagsins hafa verið á mikilli niður­leið síðustu þrjá við­skipta­daga eftir von­brigðaniður­stöður úr lykil­rannsóknum á augn­dropa­lyfinu OCS-01. Gengi bréfa félagsins stendur í 1.465 krónum þegar þetta er skrifað en dagsloka­gengið síðastliðinn föstu­dag var 3.650 krónur. Gengi Ocu­lis hefur því lækkað um tæp 60% á þremur dögum. Miðað við 67.792.176 útistandandi hluti hefur markaðsvirði félagsins lækkað úr um 247 milljörðum króna fyrir helgi í um 99 milljarða króna miðað við gengi morgunsins. Það jafn­gildir um 148 milljarða króna lækkun á markaðsvirði frá föstu­degi. Ocu­lis til­kynnti eftir lokun markaða á föstu­dag niður­stöður úr tveimur þriðja stigs rannsóknum á OCS-01 við sjón­himnu­bjúg af völdum sykursýki. Rannsóknirnar náðu ekki megin­mark­miði sínu um bætta sjónskerpu sjúklinga eftir 52 vikur. Félagið hefur í kjölfarið ákveðið að sækja ekki um markaðs­leyfi hjá bandaríska lyfja­eftir­litinu FDA fyrir OCS-01 við þessari ábendingu að svo stöddu. Sjá einnig Milljarða króna högg vegna Oculis Félagið bindur þó enn vonir við önnur lyf sem eru í þróun en tauga­verndandi þróunar­lyf félagsins, Privosegtor, fékk í janúar stöðu byltingar­kennds með­ferðar­lyfs (e. Breakt­hrough Thera­py Designa­tion) frá Mat­væla- og lyfja­stofnun Bandaríkjanna (FDA) til meðhöndlunar á sjóntauga­bólgu (e. optis neu­ritis, ON). Privosegtor hefur mögu­leika á að verða fyrsta lyf sinnar tegundar sem tauga­verndandi með­ferð við sjóntauga­kvillum, sam­kvæmt til­kynningunni. Sjá einnig Fá stöðu byltingar­kennds lyfs og gengið hækkar um 10%

Share this article