Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Markaðsvirði Ocu­lis komið yfir 200 milljarða

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð augn­lyfja­fyrir­tækisins Ocu­lis hefur hækkað veru­lega í ár og fór markaðsvirði félagsins í fyrsta sinn yfir 200 milljarða króna í gær. Um 60 milljarða hækkun á árinu Ocu­lis var upp­haf­lega stofnað á Ís­landi af Dr. Einari Stefáns­syni, pró­fessor í augn­lækningum, og Dr. Þor­steini Lofts­syni, pró­fessor í lyfja­fræði. Byggir það lyfjaþróun sína á áralöngum rannsóknum ís­lenskra vísinda­manna við Háskóla Ís­lands og Land­spítala. Félagið er einnig skráð á Nas­daq-markaðinn í New York. Sé miðað við núverandi gengi félagsins, 3.660 krónur á hlut, er markaðsvirði félagsins nú um 209 milljarðar króna. Það þýðir að markaðsvirðið hefur hækkað um um 9,1 milljarð króna frá því í gær, þegar miðað var við 3.500 krónur á hlut. Gengið hóf árið í 2.570 krónum á hlut og hefur því hækkað um 1.090 krónur á hlut, eða um 42,4%. Markaðsvirði Oculis hefur þannig aukist um um 62 milljarða króna frá áramótum. Byltingarkennd ársbyrjun Í byrjun janúar­mánaðar var greint frá því að FDA hefði veitt tauga­verndandi þróunar­lyfi félagsins, Privosegtor, stöðu byltingar­kennds með­ferðar­lyfs til meðhöndlunar á sjóntauga­bólgu. Gengi félagsins hækkaði um 10% í kjölfar til­kynningarinnar og fór í 2.765 krónur á hlut. Privosegtor hefur mögu­leika á að verða fyrsta lyf sinnar tegundar sem tauga­verndandi með­ferð við sjóntauga­kvillum, sam­kvæmt til­kynningunni. Ocu­lis segir stöðu Privosegtor sem byltingar­kennt með­ferðar­lyf vera studda af niður­stöðum um sjónskerpu úr fasa 2 ACUITY-rannsóknarinnar á sjóntauga­bólgu, sem er sjald­gæfur og sjónskerðandi augntauga­sjúk­dómur sem er oft fyrsta klíníska ein­kenni MS-sjúk­dóms. Fyrir­tækið hefur nú lokið inn­ritun í tvær sam­hliða klínískar rannsóknir á loka­stigi (fasa 3) á lyfinu OCS-01, augn­dropa­með­ferð við sjón­himnu­bjúg. Sam­tals tóku yfir 800 sjúklingar þátt í rannsóknunum DIAMOND-1 og DIAMOND-2. Sam­kvæmt upp­gjöri Ocu­lis er áætlað að niður­stöður úr fasa 3 rannsóknum á OCS-01 liggi fyrir á öðrum árs­fjórðungi 2026. Ef lyfið hlýtur samþykki yrði OCS-01, sam­kvæmt Ocu­lis, fyrsta staðbundna og inn­grips­lausa lyfja­með­ferðin fyrir sjón­himnu­bjúg af völdum sykursýki (DME) sem fengi markaðs­leyfi í Bandaríkjunum. Sam­kvæmt könnun Við­skipta­blaðsins meðal markaðsaðila spáðu flestir því að félagið myndi leiða hækkanir í Kaup­höllinni á árinu. Nærri helmingur svar­enda taldi að Ocu­lis myndi hækka mest mest á markaði á árinu 2026. Sú spá fer vel af stað ef marka má fyrstu við­skipta­daga ársins. Könnunin var send á 287 markaðs- og greiningaraðila síðastliðinn föstu­dag og bárust 89 svör, sem jafn­gildir 31% svar­hlut­falli. Verðmöt er­lendra greiningaraðila á Ocu­lis hækkuðu einnig veru­lega síðasta haust í kjölfar þess að félagið fékk jákvæða endur­gjöf frá mat­væla- og lyfja­eftir­liti Bandaríkjanna (FDA) vegna OCS-05, lyfs í þróun við bráðri sjóntauga­bólgu (AON) og fram­hluta blóðþurrðar í sjóntaug án slagæða­bólgu (NAION). Sjá einnig Verðmat Ocu­lis tvöfaldast eftir jákvæða endur­gjöf FDA

Share this article