Augnlyfjafyrirtækið Oculis hefur náð skriflegu samkomulagi við bandaríska lyfjaeftirlitið, FDA, um hönnun og tölfræðilega úrvinnslu lykilrannsóknar á lyfinu Privosegtor við sjóntaugabólgu. Þetta kemur fram í tilkynningu Oculis til Kauphallarinnar. Um er að ræða svonefnt Special Protocol Assessment, eða skriflegt samkomulag við FDA um að fyrirhuguð rannsóknarhönnun, endapunktar og tölfræðileg úrvinnsla PIONEER-1 rannsóknarinnar séu fullnægjandi til að styðja við mögulega umsókn um markaðsleyfi, að því gefnu að rannsóknin skili tilætluðum niðurstöðum og að FDA samþykki heildarumsókn félagsins. PIONEER-1 er fyrsta skráningarrannsóknin í PIONEER-rannsóknaráætlun Oculis. Þar er Privosegtor metið sem meðferð við sjóntaugabólgu, sem er bráð bólga í sjóntaug og getur leitt til varanlegrar sjónskerðingar. Engin sértæk meðferð er nú samþykkt við bráðri sjóntaugabólgu, samkvæmt tilkynningu félagsins. Oculis segir að Privosegtor geti orðið fyrsta meðferðin sem ver sjóntaugina gegn varanlegum skaða eftir slíka bólgu. Félagið telur að lyfið geti einnig nýst við öðrum sjúkdómum í sjóntaug og taugakerfi. Rannsóknin nær til breiðs hóps sjúklinga með sjóntaugabólgu, bæði fólks með MS-sjúkdóm og þeirra sem eru ekki með MS. Meginmarkmiðið verður að mæla hversu stór hluti sjúklinga nær marktækum bata í sjón eftir þrjá mánuði. Sjúklingum verður síðan fylgt eftir í tólf mánuði til að meta öryggi og þol gagnvart lyfinu. Oculis segir að rannsóknin byggi að miklu leyti á fyrri 2. stigs rannsókn félagsins. Þar hafi Privosegtor, gefið samhliða sterameðferð, sýnt verulegan bata í sjón eftir þrjá mánuði samanborið við lyfleysu og sterameðferð. Áhrifin hafi haldist út sjötta mánuðinn og niðurstöðurnar hafi einnig bent til þess að lyfið geti verndað taugafrumur gegn skaða. Riad Sherif, forstjóri Oculis, segir að samkomulagið við FDA skýri leið félagsins að umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum og staðfesti vísindalega nálgun þess. Hann segir mögulegan bandarískan markað fyrir bráða sjóntaugasjúkdóma nema 7 milljörðum dala. Privosegtor hefur áður fengið svokallaða Breakthrough Therapy-flokkun hjá FDA og PRIME-flokkun hjá Lyfjastofnun Evrópu. Lyfið hefur einnig fengið stöðu sem munaðarlaust lyf hjá bæði FDA og Lyfjastofnun Evrópu vegna sjóntaugabólgu. Oculis er skráð á Nasdaq í Bandaríkjunum og í Kauphöllinni hér á landi. Félagið er með höfuðstöðvar í Sviss en starfsemi í Bandaríkjunum, á Íslandi og í Sviss.
This article is not a security vulnerability disclosure; it is a regulatory announcement regarding Oculis's drug candidate Privosegtor for acute optic neuritis. The company has reached a Special Protocol Assessment agreement with the FDA on the design of its PIONEER-1 pivotal clinical trial, which is a significant step toward a potential future marketing application.