Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Oculis lækkaði um 49,4% í gær - eða 122 milljarða

Read Full Article →

Hlutabréf Oculis féllu skarpt í viðskiptum í Bandaríkjunum í gær eftir að félagið birti tilkynningu stuttu fyrir lokun markaða í New York í gærkvöldi. Bréfin stóðu í 29,65 Bandaríkjadölum þegar markaðurinn opnaði en lækkuðu í 22,71 dali þegar reglulegum viðskiptum lauk klukkan 20 að íslenskum tíma. Nam lækkunin 6,94 dölum á hlut, eða 23,42%. Eftir lokun markaða héldu viðskipti áfram í viðskiptum eftir lokun, sem standa yfir í fjórar klukkustundir eftir að reglulegum viðskiptum lýkur, eða til miðnættis að íslenskum tíma. Í þeim viðskiptum hélt gengi Oculis áfram að falla og fór lægst í 15,01 dali á hlut. Frá lokagengi dagsins nam lækkunin því 7,70 dölum á hlut, eða 33,89%. Frá opnunargengi dagsins, 29,65 dölum, og niður í lægsta lokagengi, 15,01 dali, lækkaði hlutabréfaverð Oculis um 14,64 dali á hlut. Það jafngildir 49,4% lækkun á einum degi. Gengið fór lægst í 12 en hækkaði hratt upp í stundarkorn. Markaðsvirði Oculis nam um 247,5 milljörðum króna þegar markaðurinn opnaði. Miðað við lægsta gengi í viðskiptum eftir lokun hefur markaðsvirði félagsins því rýrnað um rúma 122 milljarða króna á einum degi og stendur nú í um 125 milljörðum króna. Lykilrannsóknir ollu vonbrigðum Tvær lykilrannsóknir Oculis, Diamond 1 og 2, á OCS-01 augndropum við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki náðu ekki aðalmarkmiði sínu. Það fólst í meðalbreytingu á bestu leiðréttu sjónskerpu (BCVA) samkvæmt ETDRS-stafaskori frá upphafi til 52. viku. Þetta kom fram í tilkynningu til kauphallarinnar. Félagið hyggst ekki sækja um markaðsleyfi fyrir lyfið að svo stöddu og beinir þróunarstarfi og fjármagni í önnur verkefni. „Við erum að sjálfsögðu vonsvikin yfir því að sú verulega og viðvarandi minnkun á þykkt sjónhimnu sem sást í báðum rannsóknunum skyldi ekki leiða til bættrar sjónskerpu við 52. viku," sagði Riad Sherif, forstjóri Oculis. Hann benti á að sterk fjárhagsstaða geri félaginu kleift að halda áfram með öflugt verkefnasafn á lokastigi. Sjónhimnubjúgur af völdum sykursýki er ein helsta orsök sjónskerðingar hjá fólki með sykursýki. Miklar væntingar hafa verið til félagsins eins og sjá má af frétttum Viðskiptablaðsins og aðsendum greinum. Sjá einnig Oculis á miklu flugi Sjá einnig Gengi Ocu­lis rauk upp eftir nýtt verðmat Sjá einnig Verð­meta Ocu­lis 170% yfir markaðs­gengi Sjá einnig Oculis helsta vonarstjarnan

Share this article