Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tæpir 100 milljarðar horfnir af virði Oculis

Read Full Article →

Hlutabréf Oculis féllu skarpt í dag á Wall Street eftir að félagið birti tilkynningu til kauphallarinnar. Bréfin opnuðu í 29,3 Bandaríkjadölum og stóðu í 29,01 dal þegar tilkynningin var birt. Í kjölfarið tók við snörp lækkun og höfðu bréfin lækkað niður í 22,15 dali þegar reglulegum viðskiptum lauk, sem jafngildir 23,5 % lækkun frá genginu þegar tilkynningin var birt. Sjá einnig Oculis hrynur í verði í kjölfar tilkynningar Lækkunin hélt áfram í viðskiptum eftir lokun markaða á Wall Street þar sem bréfin fóru lægst í 16,35 dali. Á þeim tímapunkti nam lækkunin 43,6 % frá genginu fyrir tilkynninguna. Gengið stendur nú í 18,12 dölum. Lækkunin frá tilkynningu nemurí 10,89 dölum á hlut, eða um 37,5 prósentum. Markaðsvirði Oculis nam um 247,4 milljörðum króna áður en tilkynningin var birt. Miðað við núverandi gengi hefur markaðsvirði félagsins því rýrnað um rúma 92,8 milljarða króna á einum degi og stendur nú í um 155 milljörðum króna. Viðskipti eftir lokun markaða eru jafnan mun þynnri en regluleg viðskipti yfir daginn. Færri kaupendur og seljendur taka þátt í viðskiptunum, sem getur leitt til meiri sveiflna í verði hlutabréfa. Viðskiptin gefa engu að síður mikilvæga vísbendingu um viðbrögð fjárfesta við nýjum upplýsingum áður en markaðir opna á ný næsta viðskiptadag.

Share this article