Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíuverð nálgast óðum 100 dali á tunnu

Read Full Article →

Heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað um ríflega 5% í dag og stendur verð á framvirkum samningum með Brent-hráolíu í 98,7 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Verð á Brent hráolíu hefur nú hækkað um meira en 25 dali eða um meira en 40% frá byrjun júlí mánaðar þegar vopnahlé var í gildi milli Írans og Bandaríkjanna. Hækkunin í morgun fylgir í kjölfar þess að Hútar í Jemen sögðust hafa ráðist á tvo kínversk olíuflutningaskip, sem voru að flytja olíu frá Sádi-Arabíu, við Bab al-Mandebsund á Rauðahafi. Hútar sögðu að árásirnar væru hluti af aðgerðum til að koma á hafnbanni gegn Sádi-Arabíu. Samkvæmt Goldman Sachs námu olíuflutningar um Bab al-Mandebsund, sem er einnig kallað Tárahliðið, hefðu að meðaltali numið tæplega 9 milljónum tunna á dag undanfarinn mánuð, að því er segir í frétt Reuters . Þar af væru tæplega 4 milljónir tunna á dag sem gæti reynst erfitt að beina um aðrar leiðir ef lokað yrði fyrir fleiri mikilvægar siglingaleiðir á svæðinu.

Share this article