Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brent-tunnan komin yfir 100 dali á ný

Read Full Article →

Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu fór í dag yfir 100 dali á tunnu í fyrsta sinn síðan 22. maí síðastliðinn. Verðið hefur hækkað um meira en 6% í dag og alls um meira en 40% frá byrjun mánaðarins. Olíuverð tók stökk í morgun við fregnir um að Hútar í Jemen sögðust hafa ráðist á tvo kínversk olíuflutningaskip, sem voru að flytja olíu frá Sádi-Arabíu, við Bab al-Mandebsund á Rauðahafi. UK Maritime Trade Operations hefur staðfest að annað skipið varð fyrir árás. Um 12% af olíuflutningum heims á sjó fóru um Bab al-Mandebsundið, sem er einnig kallað Tárahliðið, áður en stríðið í Íran hófst í lok febrúar. Hútar sögðu að árásirnar væru hluti af aðgerðum til að koma á hafnbanni gegn Sádi-Arabíu. Átökin hafa nú staðið yfir í fimm mánuði og fá merki eru um að þeim ljúki í bráð. Í dag framkvæmdi Bandaríkjaher loftárásir í Íran tólfta daginn í röð.

Share this article