Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíuverð ekki hærra í rúman mánuð

Read Full Article →

Verð á Brent-hráolíu fór yfir 90 dali tunnan í viðskiptum í Asíu, í fyrsta sinn frá 11. júní, eftir að átök milli Bandaríkjanna og Írans hörðnuðu enn frekar, að því er fram kemur í Financial Times. Markaðsaðilar óttast að vaxandi spenna á svæðinu geti raskað olíuflutningum um Hormússund, eina mikilvægustu siglingaleið heims fyrir hráolíu. Brent-olía hækkaði um 2,5% í morgun og fór hæst í 90,8 dali á tunnuna. Verðið stendur í 88,3 dölum þegar fréttin er skrifuð. Frá upphafi mánaðar hefur verðið hækkað um rúm 20% og stefnir í mestu mánaðarhækkun frá því í mars. Áhyggjur af framboði jukust um helgina eftir að Bandaríkin héldu áfram loftárásum á skotmörk í Íran og tilkynntu um frekara mannfall meðal bandarískra hermanna. Samhliða hafa írönsk stjórnvöld aukið hernaðarumsvif sín á svæðinu og beinlínis hótað frekari röskun á umferð um Hormússund. Greiningaraðilar hjá ANZ sögðu umferð olíuskipa um sundið hafa dregist verulega saman vegna versnandi ástands. Þeir telja að aukin olíuframleiðsla í Bandaríkjunum dugi ekki til að vega upp á móti truflunum á flutningum frá Persaflóa og að aðgerðir Bandaríkjanna gegn írönskum höfnum þrengi enn frekar að framboði á heimsmarkaði. Bandarísk stjórnvöld sögðu að markmið hernaðaraðgerðanna væri meðal annars að tryggja örugga siglingaleið um Hormússund. Íranska byltingarvarðliðið sagði á móti að olía, gas og áburður myndu ekki fara um sundið á meðan hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna héldu áfram. Þrátt fyrir miklar sveiflur á olíumarkaði voru aðrir fjármálamarkaðir fremur rólegir. Gengi Bandaríkjadals stóð nær óbreytt og lítil hreyfing var á ríkisskuldabréfamarkaði og helstu hlutabréfavísitölum.

Share this article