Olíuverð hefur hækkað um liðlega 7% í dag og verð á framvirkum samningum með Brent hráolíu komið upp í 97,5 dali á tunnu. Olíuverð tók stökk eftir að íranski fréttamiðillinn Tasnim greindi frá því að samninganefnd Írans hefði stöðvað öll samskipti við fulltrúa Bandaríkjanna, að því er segir í frétt Reuters . Jafnframt var greint frá því að Andspyrnuhreyfingin svokallaða (e. Resistance Front), bandamenn Írans, væri með til skoðunar aðgerðir til að loka Hormússundi alfarið og takmarka umferð um aðrar mikilvægar siglingaleiðir, þar á meðal Bab el-Mandeb-sundið. Þetta kemur í kjölfar þess að Íran og Bandaríkin skiptust á loftárásum og ísraelsk stjórnvöld skipuðu her sínum að sækja fram í Líbanon í átökum sínum við Hizbollah. Verð á tunnu af Brent hráolíu hefur hækkað um 6,23 dali á tunnu í dag.