Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíu­verð aðeins 1,5% hærra en fyrir stríðið í Íran

Read Full Article →

Heimsmarkaðsverð Brent hráolíu hefur lækkað um tæplega 5% í dag og stendur nú í 73,5 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Til samanburðar stóð dagslokaverð á framvirkum samningum með Brent hráolíu í 72,48 dölum á tunnu á síðasta viðskiptadeginum áður en stríðið í Íran hófst í lok febrúar. Lækkun á olíuverði í dag er m.a. rakin til aukinnar umferðar um Hormússundið en alls fór 31 skip um sundið í gær samkvæmt gögnum Kpler. Greiningaraðili sem ræddi við Reuters segir að markaðurinn sé byrjaður að verðleggja inn sviðsmyndir þar sem olía frá Íran snýr aftur inn á alþjóðlega markaði og umferð um Hormússundið færist í eðlilegt horf. Hann segir að ef slakað verði á viðskiptaþvingunum þá gæti útflutningur frá Íran tekið hratt við sér í ljósi þess hve mikið af olíu er um borð í tankskipum í Persaflóa. Það megi telja í vikum en ekki mánuðum. Í umfjöllun Reuters segir jafnframt að farmar af hráolíu séu nú að seljast með afslætti víða um heim í ljósi aukins framboðs frá Miðausturlöndum.

Share this article