Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fram­virkt verð á Brent-olíu aftur undir 100 dali

Read Full Article →

Fram­virkt verð á Brent-hráolíu féll aftur undir 100 dali á tunnu á föstu­dag, eftir að hafa farið yfir þau mörk í fyrsta sinn síðan í maí daginn áður. Brent-verðið lækkaði um tæp 3% og stóð í um 98 dölum á tunnu um miðjan dag. Þrátt fyrir lækkunina stefndi verðið í um 11% hækkun yfir vikuna. Olíu­verð hafði hækkað hratt eftir að Hútar, sem njóta stuðnings Írans, sögðust hafa ráðist á tvö sádiara­bísk olíu­flutninga­skip í Rauða­hafi. Árásirnar hafa aukið ótta um að truflanir á mikilvægum siglinga­leiðum dragi enn frekar úr fram­boði á olíu. Donald Trump Bandaríkja­for­seti sagði jafn­framt að hann væri að íhuga um­fangs­mikla árás á Íran. Bandaríkja­her hafði þá gert loftárásir á Íran þrettán nætur í röð. Spenna á olíu­markaði hefur einnig haft áhrif á skulda­bréfa­markaði. Fjár­festar óttast að hærra orku­verð ýti undir verðbólgu og neyði seðla­banka til að halda vöxtum hærri eða grípa til frekari vaxta­hækkana. Þótt fram­virkt verð á Brent sé aftur komið undir 100 dali er það enn mun hærra en fyrr í mánuðinum og horfur ráðast að miklu leyti af því hvort átökin breiðast frekar út og hvort truflanir verða á olíu­flutningum um Rauða­haf og Persaflóa.

Share this article