Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíuverð jafnhátt og fyrir stríðið í Íran

Read Full Article →

Heimsmarkaðsverð olíu lækkaði áfram í morgun og er nú jafnhátt og áður en stríðið í Íran hófst í lok febrúar. Aukin umferð um Hormússundið hefur stuðlað að lækkun olíuverðs síðustu daga. Verð á Brent hráolíu hefur nú alls lækkað um meira en 40% frá því að það fór hæst upp í 126 dali á tunnu í mars. Heimsmarkaðsverð Brent hráolíu hefur lækkað um 1,5% í morgun og stendur í 72,6 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Verðið fór lægst niður í 72,17 dali á tunnu í morgun. Til samanburðar stóð dagslokaverð á framvirkum samningum með Brent hráolíu í 72,48 dölum á tunnu á síðasta viðskiptadeginum áður en stríðið í Íran hófst 28. febrúar sl. Í frétt Financial Times er bent á að markaðsaðilar séu tilbúnir að greiða meira fyrir olíu sem verður afhent síðar í ár, sem sé merki um að nóg framboð sé á markaðnum til skemmri tíma. Í gær fór 31 tankskip um Hormússundið, eða um helmingi fleiri en daginn áður.

Share this article