Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heims­markaðsverð á fiski­mjöli aldrei verið hærra

Read Full Article →

Alþjóð­legt verð á fiski­mjöli hefur náð met­hæðum eftir mikinn sam­drátt í ansjósu­veiðum við Perú, Ekvador og Chile. Hækkunin skiptir máli fyrir ís­lenskan sjávarút­veg en Brim, Síldar­vinnslan og Ís­félagið fram­leiða öll mjöl og lýsi úr upp­sjávar­fiski og geta notið góðs af hærra heims­markaðsverði. Á móti getur þróunin þrýst á rekstur fisk­eldis­fyrir­tækja þar sem fiski­mjöl og fiskilýsi eru mikilvæg hráefni í fóður­fram­leiðslu. Sam­kvæmt um­fjöllun Bloom­berg hefur verð á perúsku hágæða fiski­mjöli hækkað um 80% á einu ári og var komið í 2.990 dali á tonn í lok júní. Það er hæsta verð sem mælst hefur. Ástæðan er skortur á ansjósu, einni mikilvægustu hrávöru heims í fram­leiðslu fiski­mjöls og fiskilýsis. Bloom­berg segir heims­fram­leiðslu á ansjósu hafa dregist saman um allt að 40% frá fyrra ári. Stjórn­endur í greininni meta að heims­fram­leiðsla fiski­mjöls hafi dregist saman um 30 til 40%. Gunnþór Ingva­son, fram­kvæmda­stjóri Síldar­vinnslunnar, segir upp­sveifluna í verði á fiski­mjöli og lýsi hafa verið gríðar­lega síðustu mánuði og er út­lit fyrir að hún haldi áfram. Spurður um hvort þessi verðhækkun hafi ekki jákvæð áhrif á af­komu sjávarút­vegs­fyrir­tækja segir Gunnþór svo vera en það verði einnig að hafa aðra þætti í huga. „Það er út­lit fyrir það, já. En það sem er að gerast núna, eins og við erum að sjá í Noregi, er að meira af síldinni hefur farið í mjöl- og lýsis­vinnslu en áður af markaðinum. Það er margt sem spilar inn í,“ segir Gunnþór. „Mann­eldis­markaðurinn þarf þá að hækka til að geta keppt við fóður­markaðinn. Þetta kol­munni, síldin, loðnan og svo fram­vegis,“ segir Gunnþór. Síldar­vinnslan fram­leiddi 8.371 tonn af mjöli og lýsi á fyrsta árs­fjórðungi. Fiski­mjöls­verk­smiðjur félagsins tóku á móti 35.660 tonnum af hráefni á fjórðungnum, þar af 21.617 tonnum af loðnu og 13.988 tonnum af kol­munna. Félagið segir í kynningu sinni að loðnu­vertíðin hafi verið góð eftir tvö lé­leg ár og að mikið hafi verið fram­leitt af loðnu­afurðum. Áskrif­endur geta lesið ítar­lega um­fjöllun um áhrif verðhækkunarinnar á önnur sjávarút­vegs­félög og hag­kerfið í heild hér.

Share this article